Morgunn


Morgunn - 01.12.1956, Page 31

Morgunn - 01.12.1956, Page 31
MORGUNN 109 gerast ótal atburðir gegn vilja Guðs, en ekkert, sem hann hefir ekki í hendi sér með einhverjum hætti. Vegna þess að hann gefur oss frjálsan vilja, hlýtur hann að leyfa margt, sem er andstætt vilja hans. Það, sem mörgum verður örðugast að sætta sig við, er, hve þjáningar saklausra sýnast oft tilgangslausar, þegar ^annleg vera þjáist, án þess séð verði að þjáning hennar sé til nokkurs góðs, hvorki fyrir sjálfa hana né aðra. Þessi staðreynd mætir oss oft við sjúkrabeðinn og víðar. Hugs- um um saklaust barn, sem er fórnarlamb fyrir losta, léttúð eða grimmd. Syndir feðranna eru augljósar í böli barns- ms. f>á verður oss stundum örðugt að skilja, hversvegna barnið þjáist, eða réttara sagt, hvað gott geti sprottið upp hv þjáning þess. Mér er minnisstæð móðir, sem bar með barninu sínu þjáningar, sem raunar voru ekki undan slíkum rótum vunnar, en hún sagði: „ekkert getur réttlætt þessa þján- lnS“. Ég hafði djúpa samúð með henni, þótt mér væri hins vegar Ijóst, að af mannlegri skammsýni var talað. En er þá ekki eitthvert markmið jafnvel að baki þeirrar þján- Jngar, sem oss sýnist vera tilgangslaus ? Slíkar þjáningar verða oft sterkasta hvötin til að leita þeirrar lausnar, er síðar verður til þess að forða öðrum frá sömu þjáning. Slíkar þjáningar hafa einatt orðið til þess, að vísindalegar uppfinningar hafa verið gjörðar, er orðið hafa þeim, er síðar fæddust, til ómælanlegrar bless- hhar. Þannig hefir þúsund sinnum einn orðið að deyja fyrir aðra, og líf eins þjáningamanns orðið lausnargjald fyrir hina, sem síðar fæddust. Slíkar þjáningar kalla oft á samúð og kærleika ann- Hrra. Og þær kalla einmitt á meiri samúð og meiri kær- ^eika, þegar þær eru lagðar á saklausa. Hetjulegur kross- burður sakleysingjans hefir þrásinnis kallað á fórnarlund, Sem annars hefði sofið. Hvílíka lexíu hefir ekki mörg móð- lrin lært við slíkan sorgabeð? Og sjálfir þeir, sem þennan sara veg hafa gengið, hafa sumir lært að segja með heil.

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.