Morgunn


Morgunn - 01.12.1956, Page 38

Morgunn - 01.12.1956, Page 38
116 MORGUNN Við spurðum hann um grískuna, sem ekkert okkar hinna skildi nokkurt orð í, og hann svaraði: áreiðanlega hefir skilizt allt, sem ég sagði, og grískan, sem ungfrú Lára talaði — eða töluð var af vörum hennar — var hárrétt. Hann kom oftar og fékk fundi hjá okkur, og oftar fóru samtölin fram á grísku. Á þessum fundi var meðal annarra ung frænka mín. Einnig hún var búin einhverri miðilsgáfu, því að svo oft að hundruðum skipti söng hún á ítölsku og „impróvíser- aði“ lagið um leið, og kunni þó ekkert orð í ítölsku. Einhverju sinni komu þær, Lára og þessi frænka mín, til mín í bókaherbergið og tóku að tala við mig á spönsku. Þær töluðu þannig, að önnur byrjaði að jafnaði setning- una en hin lauk við hana. Ég gekk úr skugga um, að þær töluðu fyrir munn manns, sem ég hafði verið kunnugur mörgum árum áður, þegar ég var suður í Mið-Ameríku. Þarna var í samtalinu vikið að ýmsu, sem drifið hafði þá á daga mína, og ég vissi fullvel, að þær höfðu enga hug- mynd um, eins og þær kunnu sjálfar ekkert í spönsku. En um þetta er enginn annar til frásagnar en við þrjú, enginn annar var viðstaddur. Lára hefir ennfremur talað við mig á tveim mállýzkum Indíána, sem ég þekkti, því að um tveggja ára skeið var ég í landi þeirra. Nú hefi ég sagt frá, þegar Lára talaði Indíánamállýzk- ur, spönsku, grísku, frönsku og ensku. En ég hefi einnig heyrt talaða af vörum hennar ítölsku, portúgölsku, latínu og ungversku, og greinilega hefir hún einnig talað nokkur önnur tungumál, sem ég vissi ekki, hver voru. Ég ætla að segja hér frá öðrum atvikum, sem gerðust ekki fyrir miðilsgáfu dóttur minnar. Maður nokkur að nafni Finney, sem bjó nálægt Cleve- land í Ohio, var trésmiður að iðn og hafði sáralitla mennt- un hlotið, var miðill og talaði undir andaáhrifum. Ein- hverju sinni var ég á fundi með honum og var að ræða við einhvern, sem talaði af vörum hans, um sjálfsþekk- J

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.