Morgunn


Morgunn - 01.12.1956, Side 49

Morgunn - 01.12.1956, Side 49
Tvær frásagnir ★ Frá fyrsta miSilsfundinum er ég sat Þegar miðillinn sneri máli sínu að mér, sagði hann: ,,Þú heitir Guðmundur. Mér er sýndur bærinn,, þar sem þú áttir heima þegar þú varst lítill. Torfbær með þrem burstar- þiljum fram að hlaðinu. Bærinn stendur rétt við hraunið Weð háu klettunum. Ég sé þrjá bæi örstutt frá þínum bæ, tvo uppi í dálítilli brekku, annar þeirra er stór með mörg- um þiljum og þar er kirkja. Efst í brekkunni ofan við stóra bæinn eru klappir. Þriðji bærinn er neðan við brekk- una, en túnin ná saman á þessum þrem bæjum. Nú eru mér sýnd há fjöll í austur. Það er svo langt til þeirra, að þau sýnast blá, nema hvítu dílarnir, sem er snjór. Og svo er þarna fallega áin með mörgu hólmunum °g stóru eyjunum. Nú er mér sýnd gamla baðstofan í bænum þínum. Hún ei' nokkuð löng og henni er skipt í tvennt. í innri endan- um eru tvö rúm. í öðru þeirra sefur þú hjá afa þínum, sem heitir Guðmundur, eins og þú. Honum þykir undur Vænt um þig. Þú ert líka góður, lítill drengur, aðeins sex ara. Fyrir ofan höfðalagið hans afa er hilla. Þar geymir hann askinn sinn, spóninn sinn og bækurnar sínar. Til fóta er rauði, fallegi kistillinn hans. Afi vill ekki, að þú eigir neitt við kistilinn. Ég sé, að í frambaðstofunni búa gömul hjón. Þau heita Kristín og Magnús. Henni Kristínu gömlu þykir ósköp Vænt um þig, þú situr líka oft á litla skammelinu hennar, °g þá kennir hún þér vísur og segir þér sögur. Það þykir

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.