Morgunn


Morgunn - 01.12.1956, Side 66

Morgunn - 01.12.1956, Side 66
144 MOEGUNN ljósið, kærleikann, samræmið og tilbeiðsluheimkynnið, og við stígum niður á ykkar köldu jörð, til heimkynna myrk- ursins og örvæntingarinnar, niður í heim, sem er sokkinn niður í efnishyggju og er eins og dauður fyrir andlegum áhrifum, já, niður í heim, sem er fullur af synd, umkringd- ur óþroskuðum öndum og heyrir ekki raust Guðs. Við kveðjum þann heim, þar sem ljósið og sannleikurinn ríkja. Við kveðjum samræmi og frið og gistum heim sundur- lyndis og upplausnar, styrjalda og uppreisna. Við kveðj- um heim hinna hreinu og friði fylltu sálna, og tökum okk- ur bústað í heimkynnum efahyggjumannanna, afneitar- anna og jafnvel drykkjumannanna, lostaseggjanna, af- brotamannanna, þjófanna. Við kveðjum musterin hið efra, þar sem við tilbiðjum Guð himinsins, og stígum niður í hinn lægra heim, þar sem mennirnir þekkja Guð ekki en hafa sett afkvæmi sinnar eigin ímyndunar á hans stað, þar sem þeir eru þá ekki líka búnir að steypa honum af stóli og gefa sig á vald algeru trúleysi á hverskonar and- lega og ójarðneska tilveru. Stytt þýðing J. A.

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.