Morgunn


Morgunn - 01.12.1956, Page 70

Morgunn - 01.12.1956, Page 70
Dáleiðsla -- endurholdgun ★ Hefir endurholdgunarkenningin við rök að styðjast? Fæðist mannssálin oftar en einu sinni til jarðarinnar? Þessi spurning hefir verið ofarlega á baugi hjá mörg- um mönnum á Vesturlöndum,. auk þess, sem endurholdg- unartrúin hefir verið grundvöllur flestra meiri háttar trúarbragða Asíuþjóðanna um þúsundir ára. Áreiðanlegt er, að fjöldi vestrænna manna aðhyllist í einhverri mynd þessa ævafornu austrænu trú. Margir spíritistar aðhyllast hana, en þó munu hinir miklu fleiri, sem láta hana liggja á milli hluta og telja hana ósannað mál, þótt ýmsar þær raddir, sem af vörum miðlanna mæla, haldi henni fram. Því er ekki að leyna, að endurholdgunartrúarinnar gætir miklu meira þar, sem spíritisminn er boðaður sem trúar- brögð en þar sem hann er boðaður sem vísindaleg þekk- ing. Sálarrannsóknamenn hafa yfirleitt enga afstöðu tekið til þessarar fornu, austrænu kenningar. Hefir endurholdgunarkenningin við rök að styðjast? Þessi spurning vakir í hugum fjölmargra vestrænna manna, og um þetta er vafalaust þrásinnis spurt, þegar menn eru að iðka hugrænt miðilssamband. En fyrir all- löngu hafa menn einnig farið aðra leið. Menn hafa dáleitt fólk og lagt því næst fyrir það spurningar um fyrri til- veru og fyrri jarðvistir. Svörin hafa orðið margvísleg. Nýlega virðist hafa vaknað allmikill áhugi á þessu í Bretlandi og vestan hafs, og segir blaðið Psychic News frá á þessa leið: Endurholdgunarkenningin hefir skyndilega vakið al-

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.