Morgunn


Morgunn - 01.12.1956, Page 73

Morgunn - 01.12.1956, Page 73
MORGUNN 151 lega mikið, hefir sennilega náð metsölu vestan hafs á ár- inu, sem leið. Bókin, sem hr. Bernstein nefndi The Search for Bridey Murphey, vakti ótrúlega athygli. Hún lá hvarvetna á borð- um manna, og endurholdgunartrúin varð almennt um- ræðuefni. Fjöldi manns tók að kukla við dáleiðslu. Dá- leiðslan varð bókstaflega einn af höfuð samkvæmisleikjum fjölmargra manna vestan hafs. Hr. Bernstein, sá sem tilraunirnar gerði og bókina gaf út, var vinur ungu konunnar, frú Simmons (dulnefni) og manns hennar. Hann þóttist finna, að frúin væri mjög næm fyrir dáleiðslu og fékk hjónin til að ganga inn á þess- ar tilraunir. Hann leiddi frúna, dáleidda, ár fyrir ár aftur í tímann, spurði hana og spurði, og nær því ævinlega gaf hún greið svör. Eftir blaðaviðtölum við frúna að dæma, varð hr. Bernstein afar undrandi yfir frásögnum hennar. En Adam var ekki lengi í Paradís. Glöggskyggnir menn fóru að gagnrýna málið. Þá kom upp úr kafinu, að hér voru meira en lítið alvarlegar skekkjur á ferðinni. Það var þegar augljóst að afar erfitt yrði, eða ómögulegt, að rannsaka málið til fulls, sögulega, með því að á þeim tím- um, sem „Bridey Murphey“ á að hafa verið uppi, voru ekki færðar kirkjubækur yfir fædda, dána og gifta á Ir- landi. Þó var fljótlega hægt að ganga úr skugga um, að bæði í aukaatriðum og meginmáli voru fjölmargar sögulegar villur í máli dáleiddu frúarinnar. Fæst af þeim nöfnum, sem hún nefnir, hefir tekizt að finna á írlandi, nema sum svo algeng, að í þeim felst ekkert sönnunargildi. Enginn staður er til með nafninu „Meadows“, þar sem „Bridey“ kvaðst hafa fæðst. Ekki er unnt að finna í skýrslum Drottningarháskólans í Belfast, að þar hafi nokkrir menn komið við kennslu, sem borið hafa nafnið Brian Mac- Carthy, og meira að segja finnst hvergi í heimildum í Ir- landi stafur fyrir því, að maður með þessu nafni hafi

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.