Morgunn


Morgunn - 01.12.1956, Page 75

Morgunn - 01.12.1956, Page 75
MORGUNN 153 á lífi 59 ára gömul. Er það annað en endurminning um þessa konu og nöfn hennar, sem kemur fram hjá dáleiddu konunni, sem kallar sig Bridey Murphey frá Cork? Prest- urinn rakti síðan feril frú Simmons sem barns í Chicago. Af því, sem hann leiðir í ljós, virðist auðsætt, að frá duld- um bernskuminningum og samveru með írsku fólki í barn- æsku sé meginhluti af sögu frú Simmons hinnar dáleiddu runninn. Þetta mál vakti geysilega athygli vestan hafs í byrjun. Naumast verður annað sagt en að það sé nú orðið fremur leiðinlegt mál. Margir hafa áfellzt frúna og dávaldinn, hr. Bernstein, fyrir svik. Margir sálfræðingar og sálar- rannsóknamenn hafa rannsakað málið og ritað um það. Margar skýringar hafa þeir fundið aðrar en vísvitandi svik, sem þeir telja ekki ástæðu til að ætla þeim hr. Bern- stein og frú Simmons. Við því má búast, að þetta mál bindi endi á mikið af dáleiðslukuklinu, sem mjög var farið að tíðka. Og er þá vel. Aðeins valdir menn mega með dáleiðsluna fara. Og við hinu má einnig búast, að trú margra á endurholdg- unina minnki og margir gerist veikir í trúnni, sem trúna fengu af lestri bókarinnar, sem hér hefir verið sagt frá. Auðvitað stendur hvorki né fellur endurholdgunartrúin með röksemdum hr. Bernsteins eða rökleysum. Vega þarf og meta rökin með og móti. Þótt einhver vitleysa komi upp í einstöku tilfelli, verður heilt mál ekki að vitleysu fyrir það. ----o---- 1 febrúarhefti danska mánaðarblaðsins Spiritistisk Tid- ende er birt frásögn, sem mörgum hefir þótt benda til endurholdgunar, og er næsta athyglisverð. Sú frásaga hefir þegar verið birt víða, og hefir danska blaðið hana eftir tímaritinu Okkulte Stimme á þessa leið: 17. janúar 1944 fæddist meybarn í Nýju Delhi á Ind- landi. Var stúlkunni gefið nafnið Shanti Devi. Þegar hún

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.