Morgunn - 01.12.1973, Blaðsíða 13
UPPHAF KÖLLUNAR MINNAR 91
já, slík stórvera getur dulizt í sendisveininum, ráðsmannimun,
þvottakonunni, vélamanninum o. s. frv., en þú verður þess ekki
var, er þú berð ekki i brjósti slíka samúð með þessu fólki, að
hún veki hjá því þann kærleika og traust til þín, að það opni
þér hug sinn og hjarta. Svo lágar ytri stöður eru heldur ekki
til þess fallnar að vekja virðingu og aðdámi fjöldans, þvi að
auðæfi og glæsileiki í framkomu og lífsháttum er í meira áliti
bæði hjá blöðunum, fræðimönnmn og almenningi. Þú skalt
því ekki vænta þess að öðlast hæfileika til að sjá hinn vígða,
jafnvel þótt þú mætir honum i holdi og blóði, á meðan almenn-
ingsálitið, siðir og venjur, hvað maður geti verið þekktur fyrir
o. s. frv. er ennþá alls ráðandi um hugsjónir þínar. Þú færð
alls ekki annað að sjá þar sem hann er en „jötuna“, ytra lát-
leysi og smæð, og ef til vill bakmælgi, háð og spott, sem stund-
um verður hlutskipti hans. Vertu því varkár. Heilagur andi er,
auk þess að vera hin æðsta þekking á Guði, einnig hinn æðsti
kærleikur. Ef þú þess vegna átt nógan kærleika hið innra með
þér, munt þú einnig uppgötva hina andlegu opinberun, heilag-
an anda eða hreinan guðdómlegan kærleika i hverju brjósti
sem er, hversu aumum tötrum eða lörfum, sem það kann að
dyljast í. Þótt þér finnist þú sjálfur vera „frelsaður“, veitir það
þér ekki nokkurn rétt eða forréttindi til þess að dæma aðra.
Guðlegt ætterni þekkist á kærleikanum einrnn.
VII
Hinn vígði kemur ekki til þess að stœla tjáningu annarra vígðra
meistara, heldur áðeins til þess áÖ skapa nýtt víSsýni hugans,
siðgæÖi og skilning á lífinu.
Þegar andi Guðs yfirskyggir menn i líkamlegri tilveru, er
það undantekningarlaust til þess að færa heiminum eitthvað
nýtt, endurskapa eða þroska siðgæðið til enn hærri hugsjóna.
Hinn vígði mun því aldrei fara að stæla það, sem þegar hefur
verið birt eða opinberað af anda Guðs gegnum fyrri vígða
meistara. „Ekki láta menn nýtt vin á gamla belgi.“ Til þess er
hinn vígði ætíð í heiminn kominn, að afhjúpa eða opinbera