Morgunn - 01.12.1973, Blaðsíða 11
UPPHAF KÖLLUNAR MINNAR
89
sannleiksandinn, kemur, mun liann leiða yður í allan sannleik-
ann, því að hann mun ekki tala af sjálfum sér, heldur mun
hann tala það sem hann heyrir, og kunngjöra yður það sem
koma á. Hann mun vegsama mig, því að af mínu mun hann
taka og kunngjöra yður. Allt það, sem faðirinn á, er mitt; fjrrir
því sagði ég, að hann tæki af mínu og kunngjörði yður.“ —
Þegar hér við bætist, ásamt öðrum fyrirheitum, að Jesús legg-
ur hvað eftir annað mikla áherzlu á „endurkomu“ sína, þá
bendir það ekki sérstaklega til þess, að opinberanir fyrri tíma
muni ekki endurtakast. Hvað er „huggarinn, andinn heilagi“?
— Hvað er „endurkoma Krists“ ? — Er þetta ekki einmitt hin-
ar mestu opinberanir tilvenmnar? — Og hvað er „komandi
kynslóðir“? — Eru núlifandi kynslóðir ekki einmitt þessar
„komandi kynslóðir“ miðað við daga Jesú í Palestínu? — Og
er afstaða þessara sömu kynslóða ekki einmitt vísindaleg, eru
þær ekki gæddar nokkru þroskaðri hæfileikum til þess að skilja
lífsgátuna vísindalega heldur en kynslóðir fyrri tíma? — Og er
þetta ekki einmitt ástæðan til þess, að þær geta ekki lengur
„trúað“, heldur krefjast „þekkingar“? —
Yertu því varkár, þegar þú dæmir aðra, því að ekkert veizt
þú um það, „hvenær allt þetta muni gerast“. — „Enginn þekk-
ir daginn né stundina.“ — Þessir atburðir koma yfir sérhvern
mann eins og „þjófur á nóttu“. —
Þótt þú fáir sjálfur öðlazt sælu á grundvelli opinberana eða
atburða fyrri tíma, veitir það þér alls engan rétt til þess að líta
svo á, að hið sama gildi um alla tíma og alla menn, því að ef
svo væri, þá væri fyrirheit Jesú til „komandi kynslóða“ alveg
óþarft og þýðingarlaust.
Samkvæmt þinni eigin trú, samkvæmt biblíunni, samkvæmt
prédikun prestsins er því alls ekki útilokað, að nútima menn
geti orðið yfirskyggðir heilögum anda. Það er engin fjarstæða,
að Guð geti alveg eins „talað“ beint til manns tuttugustu aldar
eins og manns í fornöld. — Það er engan veginn óhugsandi, að
i fátæklegri mannveru, í lágri stétt og stöðu, geti andi Guðs
tekið sér bústað og beinlinis komið í ljós i núlifandi manni og
þar með gert trúarlegar opinberanir fortíðarinnar að jafn raun-