Morgunn - 01.12.1973, Blaðsíða 84
162
MORGUNN
Niðurstöður.
urnar og átti svo að kynni sér innihald þeirra og velja þá
skýrslu sem hann taldi eiga við sig, því vitanlega voru þessar
skýrslur ómerktar með öllu.
Niðurstöður tilraunarinnar voru þær, að Haf-
steinn hefði vissulega lýst ýmsu fólki, sem
með ýmsum hætti var tengt sitjurunum.
Þetta þvkir okkur héma heima á Islandi litlar fréttir, en gott
er að fá shkt staðfest af vísindamönnum sem eru sérfræðingar
í slíkum rannsóknum.
Það sem rannsóknurunum þótti sérstaklega athyglisvert í
sambandi við hæfileika Hafsteins er m.a. það, hve glöggur
hann er á mannanöfn og staða. Er þessi hæfileiki mjög fátíður
meðal miðla og segir í skýrslunni að í þessum efnum sé Haf-
steinn í mjög fámennum hópi afburðamiðla. Einnig fannst
þeim afar einkennilegt, að þær verur sem hann lýsir iðulega
eru tveim kynslóðum eldri en hann sjálfur. Þetta er talið auka
mjög líkurnar fyrir því að fyrirhærin séu sönn og ekta.
Þá hefur annað atriði vakið sérstaklega athygli, en það er hve
margar þeirra vera sem lýst er virðast hafa farizt með voveif-
legum hætti. Er nefnt til dæmis, að af niu persónum, sem kann-
azt var við og sannað hverjar væru, þá höfðu fimm drukknað
eða dáið af öðrum slysförum.
Beitt var þeirri aðferð að senda ættingjum sitjara skýrslu til
álitsgerðar, án þess að getið væri hverja sitjari hefði valið
sjálfur. Og svo eru nefnd dæmi um það með hverjum hætti
ætlingjar gátu stuðlað að því að komast að hinu sanna um
ýmsar persónur.
Sökum þess hve þessi skýrsla barst seint til landsins verður
að þessu sinni að biða að rekja efni hennar nánar.
Fyrir Morgunn fagnar því að fremsti miðill ís-
spíritismann lands skuli nú hafa veitt vísindamönnum
annarar þjóðar tækifæri til þess að rannsaka
algjörlega hlutlaust og vísindalega þessa merkilegu dulrænu
hæfileika, sem svo margir eiga hágt með að trúa.
Það er annað en auðvelt fyrir hinn næma miðil að gangast
undir slíka rannsókn í öðru landi þar sem töluð er honum
ókunn tunga og allar aðstæður eru gjörólíkar því sem hann á
að venjast hér heima á Islandi. Rannsóknarmenn hafa fært
Hafsteini sérstakar þakkir fyrir það hve samvinnuþýður hann