Morgunn - 01.12.1973, Blaðsíða 42
120
MORGUNN
4 9 5 16
14 7 11 2
15 6 10 3
1 12 8 13
Þessar tölur eru athyglisverðar fyrir það, að leggi maður
saman hverja röð lárétt, er útkoman 34. Sé hver röð lögð sam-
an lóðrétt, kemur út sama tala. Sama verður uppi á teningnum
ef miðtölurnar fjórar eru lagðar saman og eins ef lagðar eru
saman miðtölurnar til hægri og vinstri. Enn má leggja saman
miðtölurnar efstu og neðstu, enn er útkoman 34. Og sama kem-
ur einnig út ef homtölumar eru lagðar saman.
Á þeim stað í Knittlingen þar sem hesthús gömlu Thurn- og
Taxis-póststöðvarinnar stóð á miðöldum, er nú risið nýtt ráð-
hús. 1 þvi hefur verið komið fyrir hinu svonefnda „Svarta
safni“, sem tileinkað er þessum furðulega galdrameistara. Þar
má finna myndir, bréf, söngva, bækur og samninga um alla
veggi og í glerskápum. Þar má sjá Fást-leikbrúður og alls konar
muni, sem Fást-sérfræðingurinn Karl Theens, kennari frá
Stuttgart, hefur safnað. í þessu lítt kunna safni má finna er-
indi, bréf og bækur um Fást allt frá Lessing og Calderons til
Elizu Marian Butler og Thomasar Manns og önnur fræg nöfn.
Þar vottar til dæmis franskur sendiherra það, að ekkert þýzkt
verk hafi haft önnur eins áhrif á franska listamenn og tónskáld
og Fást-sögnin. Nefnir hann í þessu sambandi Gérard de Ner-
val, Berlioz, Delacroix, Gounod og Paul Valery. Eða eins og
Heine skrifaði til Lundúna: „Hann dr. Fást okkar er svo sann-
ur og djúpur í eðli sínu, býr yfir svo miklum þekkingarþorsta
tun eðli hlutanna, og er svo fræðimannslegur í framsetningu
jafnvel þegar hann fjallar um þessa heims efni, að hann gæti
aðeins hafa verið Þjóðverji. Það er ekki minnsti vafi á því, að
hann hefur verið til.“ Þeir, sem tónlist unna, geta fundið þess-
ar skoðanir enduróma í Fást symfóníu Franz Liszts í eftirleikn-
um, því þar má finna dýpt og breidd mannlegrar reynslu í út-
setningunni túlkaða á glæsilegan hátt.
Á seinni tímum hefur enn ýmislegt komið í Ijós, sem snertir