Morgunn - 01.12.1973, Blaðsíða 61
í STUTTU MÁLI
139
Litlu mun hafa munað á vegalengdum. Nú var von á þeim fé-
lögum. heim. Ferðir þessar tóku að jafnaði 3 til 4 daga. Þá
voru ekki bílamir, en hesturinn, þarfasti þjónninn, gegndi því
hlutverki að bera bagga og menn. Það tók lengri tíma, en ann-
að þekktist ekki og oftast fór þetta vel.
Nú var von á þeim félögum heim, og tilhlökkun krakkans í
fásinninu var mikil. Pabbi var vanur að gleðja mig eitthvað
þegar hann kom úr kaupstaðnum. Oftast var það bók sem hann
færði mér, hann vissi svo sem hvað mér kom.
Það var kalt í veðri, og hafði kastað éli. Liðið var á daginn
og farið að bregða birtu. Ég var eitthvað að snúast við hross
fram á svonefndum Stöllum, en þeir em suður með ánni nokk-
uð langt frá bænum. Ég mun hafa verið hér um bil á móti
Skottastöðum (sem nú em í eyði), en þá var búið þar, og átti
þar heima jafnaldra mín, Ragnheiður að nafni, sem nú er hús-
freyja á Steiná í sömu sveit, sama megin ár og næsta bæ við
Hól, þar sem foreldrar mínir bjuggu. Það var venja ookkar
Rögnu, að kallast á yfir ána, og dvaldist okkur stundum æði
lengi við masið. Þannig mun hafa verið að þessu sinni. Eins og
fyrr segir var farið að bregða birtu, og mundi ég nú allt í einu
eftir þvi að ég hafði átt að vera fljót. Varð mér litið lieim, og
sá ég þá að hestar voru heima við bæ. Kvaddi ég nú Rögnu í
skyndi og hljóp heim sem fætur toguðu. Þegar ég nálgaðist bæ-
inn sá ég strax að þetta vom hross pabba, og herti nú á hlaup-
unum sem mest ég mátti. Gripahús nokkur vom heima við bæ.
Syðst var lítið fjárhús, lambhús kallað, síðan hesthús, þá fjós.
Nyrzt var bærinn, gamall torfbær með fjórum þiljum og var
baðstofa þversum, fjærst bæjarhúsa, og lágu þangað löng
göng úr bæjardymm. Voru þar ýmis hús til beggja handa.
Fyrst skemma til hægri. Lítil stofa til vinstri. Einnig gamall
skáli. Innar í göngum voru búr til hægri handar og hlóðaeldhús
til vinstri. Þar fyrir innan var lítill eldiviðarkofi. Hann hafði
litlar útidyr. Skemman hafði einnig útidyr. Var það annað þil
til hægri við bæjardyr. Ég vil bæta því við, að bærinn var rif-
inn á þessu sama ári og næsta. Var timburhús með kvisti reist
aðeins framar á hólnum. Einnig það er farið veg allrar verald-