Morgunn - 01.12.1973, Blaðsíða 82
160
MORGUNN
vegum félagsins og heldur lækningafundi daglega fyrir félags-
meðlimi eftir sömu reglu og gildir fyrir aðra miðilsstarfsemi.
— Fundarbókanir eru mótteknar i síma SRFl daglega frá kl.
1 e.h. til 5 e.h.
Fyrirlestra-
ferðir.
Á siðasthðnu sumri fór ritstjóri Morguns, hr.
Ævar R. Kvaran, í fyrirlestraferð til Austur-
og Norðurlands, og heimsótti systurfélögin á
Egilsstöðum, Akureyri og Sauðárkróki. Auk þess aðstoðaði hann
við stofnun nýrra félaga á Fáskrúðsfirði og Eskifirði. Er þetta
þáttur í viðleitni stjórnar SRFl til að aðstoða félögin úti um
landsbyggðina í sívaxandi mæli með fyrirlestrahaldi og annarri
fræðslu um málefnið. — Vonandi verður þessi vísir að slíku,
upphaf reglubundins og víðtækara starfs í þessum efnum, sem
byggt verði á ráðningu erindreka á vegum félaganna sameigin-
lega. — Til þess þarf hins vegar f járhagslegt holmagn, og er því
nauðsyn á að forystumenn allra félaganna hittist og geri átak
til að þetta veigamikla stefnumál megi ná framgangi.
Svo sem fyrr var um getið, voru fyrirhugaðir
fræðslufundir á vegum SRFÍ hér í Reykjavík
á vetri komanda með svipuðum hætti og ver-
ið hefur undanfarin ár. — Fyrsti fundur af þessu tagi var hald-
inn í Norræna Húsinu fimmtudaginn 1. nóvember og flutti
þar erindi Séra Bjöm 0. Björnsson, og fjallaði efni þess um
Heilaga kvöldmáltíð. — Eins og áður, er fyrirhugað að fundir
sem þessir verði haldnir mánaðarlega. Voru fundardagar raun-
verulega ákveðnir, en vegna nokkurrar óvissu um húsnæði er
ekki á þessu stigi unnt að telja hér upp þá daga, sem til greina
hafa komið, þótt slíkt hefði verið mjög æskilegt, og verður því
auglýst með sama hætti og verið hefur um þessa fundi í dálk-
unum „Félagslíf“ í Morgunblaðinu með nokkurra daga fyrir-
vara um efni og tilhögun hverju sinni.
Fræðslufundir
í Reykjavík.