Morgunn - 01.12.1973, Blaðsíða 76
154
MORGUNN
um svik. Enda þarf ekki alllítið hugarflug til þess að ímynda
sér þetta ágætisfólk standa fyrir slíku stórsamsæri. Hins vegar
er óhætt að segja, að alhr þeir sem að bókinni stóðu hafi sýnt
óvenjulegt hugrekki með því að segja hiklaust það sem viðkom-
andi töldu sannleikann, þvi það þarf minna til á efnishyggju-
tímum til þess að fólk sé haft að háði og spotti af þeim, sem
ekkert skyn bera á andleg mál.
Árni Gunnarsson á sérstakar þakkir skilið fyrir þennan út-
varpsþátt, sem var frábærlega vel undirbúinn og unninn. Sann-
ar Ámi með þessum þætti að hann er í röð allra beztu starfs-
krafta, sem rikisútvarpið hefur á sínum vegum.
HULDUFÖLK.
Höfundur: Ámi Öla.
ÍJtg. og prentun: Setberg, 1973.
Myndskreyting: Atli Már Árnason.
Ámi Öla er einn þessara ágætu þjóðlegu rithöfunda okkar,
sem sameinar það að vera samtíð sinni til skemmtunar og fróð-
leiks og skilja eftir sig heimildir, sem eiga eftir að verða
óbornum kynslóðum að miklu gagni. Hann á til dæmis áreið-
anlega eftir að hljóta lof sagnfræðinga framtíðarinnar fyrir
þann mikla fróðleik sem hann hefur safnað um sögu höfuð-
borgarinnar. Reykjavík stendur í mikilli þakkarskuld við Ama
fyrir það verk. En hann skrifar sem betur fer um fleira, því
hann er stórfróður og óþreytandi rithöfundur.
Þessi síðasta bók Árna er eitthvert hugnæmasta verk sem ég
hef lesið eftir hann. Það er dásamlegt að fá svo vel og hlýlega
skrifaða bók um hina ósýnilegu vini okkar huldufólkið og álf-
ana, sem eru höfundi jafnljóslifandi sannreynd og mennskir
menn. Hver Islendingur sem ann þjóðlegum fróðleik ætti að
ætla þessari fróðlegu og skemmtilegu bók sess í bókaskáp sínum
við hlið hinna beztu bóka um þjóðleg efni. Ekki gæti ég hugsað
mér betri gjöf handa góðum vini. Þessi bók er eiginlega ágætt
framhald fyrri bóka Árna um svipað efni. Á ég þar við bókina
Álög og bannhelgi. Þar kemur þjóðtrúin á álfa mjög við sögu,
þvi þeim eru eignuð ákvæði um bannhelgi á ótal stöðum hér á