Morgunn - 01.12.1973, Blaðsíða 48
126
MORGUNN
Hvað þá um hið ótölulega líf og lífsfyrirbæri á öðrum reiki-
stjömum? Hvað þá um alla þá framþróun sem fer fram frá
ófullkomleika til fullkomleika, og kölluð himingeimurinn?“
Engu að síður segja sjálfglaðir efasemdarmenn sem aldrei
hirða um að kynna sér sálarrannsóknir enn þann dag í dag, að
spíritískir boðendur segi aldrei neitt, sem ekki er á valdi nú-
tíma þekkingar. a
Þó að Hambling sé kunnastur af miðilsfundum sínum, væri
ekki rétt að greina frá sögu hans sem miðils án þess að vikja
að andlegum lækningum hans.
Kringum 1935 þegar hinn mælski stjómandi safnaði múg
manna saman í Finsbury Park kirkjunni, gerði annar stjóm-
andi vart við sig. „Dr. Gee“, eins og hann var af kærleika kall-
aður, tókst að framkvæma „kraftaverka“-lækningar með að-
stoð meira en 20 sérfróðra samverkamanna á jörðu.
f Devonshire, þar sem Hambling eignaðist heimili og stofn-
aði griðastað í Torquay, var klukkan oft orðin 11 að kvöldi, áð-
ur en siðasti sjúklingurinn fór. Til þess erfiðis, sem þvi var
samfara að lækna fólk, heyrði oft á tíðum dásvefn sem varaði í
meira en 4 stundir. Dr. Gee svaraði sjúklingi sem lét i ljós
undrun yfir hversu nákvæmlega hann var rannsakaður:
„Frá þvi ég hóf fyrst að hafa aftur samband við jörðina af-
réð ég að sýna fyllstu vandvirkni. Mér leyfðist ekki lengur að
gefa minna en það bezta sem ég gat. Þetta er ekki mælt til þess
að hæla mér, því að freistingin til að afla f jár er að eilífu horf-
in. Ef ég því væri spurður þeirrar spumingar hvers vegna ég
héldi áfram lækningastörfum, hlyti ég að svara, til þess að
leita jafnvægis og bæta fyrir það sem ég vanrækti í jarðlífinu
með ósérplægnu og hlifðarlausu starfi nú, þegar mér hafa
birzt lögmál samskipta við jarðneska vini.“
Hambling, sem lézt þann 4. nóvember 1971, var jafnákafur
i áhuga sinum til hinzta dags og barðist hlifðarlaust gegn fylgj-
endum rétttrúnaðar, hvar sem þá var að finna, sérstaklega í
hópi spíritista.