Morgunn - 01.12.1973, Blaðsíða 27
TJPPHAF KOLLUNAR MLNNAR
105
XIX
Ef reynsla mín hefði ekki látið eftir sig ytri jákvceSar afleiS-
ingar, sem áSrir gátu athugaS.
Hér á pappímum hef ég trúað lesendum fyrir helztu fyrir-
bærum eða atriðum hinna margháttuðu sálrænu eða andlegu
skynjana, sem mér veittust á þessu tímabili og urðu í samein-
ingu tjáning guðdómlegrar köllunar til þeirra athafna, sem síð-
an hafa verið ævistarf mitt.
Sumir halda nú ef til vill, að skynjanir mínar hafi verið
blekking ein eða draumsýnir, en ég vildi strax mega benda á
það, að skynjanimar birtust mér í fullri vökuvitund. Sýnirn-
ar komu hvenær sem var þessa daga, undir eins og ég settist
niður til hugleiðinga, án þess að vottaði áður fyrir svefni,
leiðslu eða missi vökuvitundar á nokkum hátt. Enn fremur ber
að minnast þess, að því er tekur til nefndra skynjana, að ég
kom þeim af stað sjálfur og rauf sambandið við þær að eigin
óskum og eftir því sem likami minn var fær um að þola.
Uni nánari útlistun á opinberun, heilögum anda eða vígslu
verð ég að vísa til rits þess, sem ég hef i smíðum og nefnist
„Bók lífsins“. Hér skal ég aðeins geta þess, að svo háleitur við-
burður er ætíð persónuleg reynsla, algerlega og eingöngu ætl-
uð þeirri vem, sem fyrir verður, og getur vitaskuld aldrei orðið
bein staðreynd öðmm en þeim, er slíka yfirskyggingu hlýtur.
Ég skal því ekki dvelja lengur við hinar ytri aðstæður, þegar
fyrirbærin gerðust. Þær em hvort eð er fyrst og fremst per-
sónubundnar, og geta því hvorki staðfest né ónýtt sannindi
köllunar minnar.
Þær andlegu sýnir, sem mér hafa hlotnazt, væru því í sjálfu
sér þýðingarlausar, hefðu þær ekki látið eftir sig sýnileg áhrif,
sem hægt er að rannsaka. Því að fjöldi manns telur sig hafa
hlotið andlegar sýnir, vitranir eða opinberanir, en fæstar þess-
ara skynjana sem taldar em, hafa látið eftir sig nokkur sýni-
leg ytri merki, nokkur jákvæð áhrif, nokkra breytingu á skynj-
andanum, sem aðrir gætu séð og athugað. Þær verða því hvorld
staðfestar sem hugarburður né veruleiki og hafa því ekkert