Ný saga - 01.01.1988, Page 40

Ný saga - 01.01.1988, Page 40
Sigurður G. Magnússon inni, sem komu í heimsókn eða til lengri dvalar. Börn voru gjarnan send í sveit yfir sumartímann og stundum fóru heilu fjölskyldurnar í kaupavinnu á heimaslóðir. Þessi beinu og óbeinu tengsl við sveitina hafa að öllum lík- indum hjálpað fólki að aðlag- ast þeim breytingum sem fylgdu flutningi í þéttbýlið. Einnig er athyglisvert að líta á dagskrá útvarpsins eftir að það kom til sögunnar. Hún speglaði þá menningu sem réð ríkjum í landinu. Utvarp- ið flutti efni sem hverjum sveitamanni var kunnugt, t.d. rímnakveðskap og kvöldvök- ur. Þá má ekki gleyma bók- menntum og listum. I sagna- skáldskap var sveitin helsta viðfangsefnið á tímabilinu milli stríða, „en hreinar Reykjavíkursögur, þ.e.a.s. sögur sem gerðust eingöngu eða svo til eingöngu þar, voru fjarska fáar alveg fram undir seinna stríð.“25 Sögur þessar voru sömuleiðis með raunsæis yfirbragði, lausar við allt tild- ur eða uppgerð. Þetta var einnig einkenni myndlistar- innar á þessum tíma. Við- fangsefnið var yfirleitt sveitin og náttúran, túlkuð með róm- antísku raunsæi.26 Það er eftir- tektarvert að þeir sem skrif- uðu skáldsögur eða máluðu myndir á þessu tímabili voru yfirleitt búsettir í þéttbýli. Það gefur okkur sannarlega ákveðna vísbendingu um hug- arfar þessara liðsmanna lista- gyðjunnar og um umhverfið sem þeir bjuggu í. Þetta við- horf til lífsins tekur ekki að breytast fyrr en í lok fjórða áratugarins. Þá fer fólk í æ rík- ari mæli að líta á þéttbýli sem sérstakt samfélagsform, sem lýtur sínum eigin lögmálum. Það er út af fyrir sig merkilegt að á þessum árum spretta upp átthagafélög í Reykjavík og starfa mörg hver með miklum blóma á næstu áratugum. Skýringin á því að þessi félög ná mestu flugi á fimmta ára- tugnum hlýtur að vera sú að þá fyrst hafði þéttbýlið fjar- lægst sveitina og menningu hennar svo að ástæða þótti til að endurgera veruleika bændamenningarinnar. Fjárrekstur á Hverfisgötu. Um aldamótin 1900 var Reykjavík lítil þéttbýiiseining og tengsl bæjarins við sveitina voru mikil. Búskapur var víða stundaður i bænum og Reykjavík var í raun eitt stærsta landbúnaðarhérað landsins. Vinnan var álitin göfga manninn og því ekkert við það að athuga að ungir sem aldnir tækju til hendinni þegar á þurfti að halda. Pessi beinu og óbeinu tengsl við sveitina hafa að öllum líkindum hjálpað fólki að aðlagast þeim breytingum sem fylgdi flutningi í þéttbýlið. ÍSLAND — EINSDÆMI í EVRÓPU? Það ferXekki á milli mála að þær hugmyndir sem um hefur verið rætt að framan féllu best að aðstæðum alþýðunnar hér á landi. Það er full ástæða til að ætla að þeir sem voru betur metnir í þjóðfélaginu hafi orðið fyrri til að tileinka sér „hégóma“ borgarsamfélags- ins, eins og það var gjarnan nefnt. En við verðum að hafa í huga að dagskráin er engan veginn tæmd.Fyrir liggur um- ræða um ótal þætti úr daglegu lífi fólks, þætti sem gætu varp- að ljósi á þær hugmyndir sem hér hafa verið nefndar. Þar má nefna tómstundir fólks, áhrif kirkju og stjórnvalda á líf ein- staklinga, samncyti kynjanna og almennt tilfinningalíf, við- horf til periinga, barnauppeld- is og menntunar. Samanburð- ur á þessum þáttum, bæði í bænda- og þéttbýlissamfélag- inu, gæti svarað þeirri spurn- ingu hvort hér hafi átt sér stað bylting í samskiptum manna um aldamótin 1900, eins og oft er látið í veðri vaka. Ef það reynist hins vegar rétt, sem haldið er fram í þessari grein, að breytingarnar hafi verið til- tölulega litlar, þá er ljóst að framþróunarkenningin nýtist okkur takmarkað við skýr- ingar á íslenskri þjóðfélags- þróun. Það verður hins vegar að teljast merkilegt ef íslenskt samfélag hefur náð að halda flestum einkcnnum bænda- samfélagsins fram undir miðja 20. öld, þrátt fyrir þær lýð- fræðilegu og efnahagslegu breytingar sem urðu á sama tíma. Slík þróun er nánast einsdæmi í veraldarsögunni. Japan er þó meðal undantekn- inganna, en þar hefur menn- ing gamla samfélagsins haft 38
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Ný saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.