Ritmennt - 01.01.1998, Page 72
STEINGRÍMUR JÓNSSON
RITMENNT
halda, að það hafi verið sjera Sveinbjörn. Þegar leið að októbermánaðar
lokum, settist jeg niður og fór að rita í fyrstu örk blaðsins og byrjaði á
„frjettum"; en meðan jeg var að því, kallaði Rósenöin stiptamtmaður á
mig, og sagði mjer að fara austur í Árnessýslu, og það þegar daginn eptir,
og taka þar við sýslumannsembætti, því að faðir minn, sem þar var þá
sýslumaður, yrði eptir boði stjórnarinnar að fara utan á fárra daga fresti
með skipi, sem hjer var þá að kalla ferðbúið til Kaupmannahafnar. Eg
varð að hlýða þessu stiptamtmannsboði og leggja pennan niður í Þjóð-
ólfs þjónustu. Var þá sent til sjera Sveinbjarnar, hann beðinn að bjarga
blaðinu og það gerði hann rækilega.
Páll Melsteó.
Hér er upphafinu lýst á skýran og greinilegan hátt, og virðist
engu þurfa við að bæta. Þessi frásögn Páls hefur verið tekin trú-
anleg af flestum enda ekkert í henni sem við fyrstu sýn er hægt
að draga í efa - nema ef verið gæti að einhver velti vöngum yfir
því hvers vegna mennirnir fimm héldu fund sinn í kirkjugarðin-
um til að gera út um málefnið.
Páll víkur að stofnun Þjóðólfs í Endurminningum sínum sem
út voru gefnar að honum látnum á aldarafmæli hans. Frásögnin
er í meginatriðum samhljóða Þjóðólfsgreininni 1888, nema hvað
Páll virðist hitur í garð Sveinbjarnar, og í Endurminningunum
minnist Páll ekki á fundinn í kirkjugarðinum né heldur að
Sveinbjörn muni hafa átt hugmyndina að nafninu á blaðið. Páll
segir ennfremur að það hafi verið 30. eða 31. október sem Ros-
enorn bauð honum að fara austur í Flóa til að taka við Árnes-
sýslu í forföllum föður síns.3
Augljóslega er eitthvað athugavert við þessar frásagnir Páls.
Fyrsta blað Þjóðólfs kom út 5. nóvember 1848, fimm eða sex
dögum eftir að Sveinbjörn tók við ritstjórninni samkvæmt frá-
sögn Páls. Eklti getur það talist langur fyrirvari fyrir nýjan rit-
stjóra, og hefði því ekki verið óeðlilegt að Sveinbjörn hefði afsak-
að byrjendabrag á blaðinu með því að hann hefði haft svo stutt-
an tíma til stefnu. En ekkert slíkt er nefnt í blaðinu, enda ekki
ástæða til því ekki er sjáanlegt neitt sem bendir til að svo hafi
verið í pottinn búið sem Páll heldur fram. Og fyrir 1888 er aldrei
minnst á það einu orði í Þjóðólfi að Páll hafi komið nærri stofn-
un blaðsins, hvað þá að hann hafi verið upphafsmaðurinn, eklci
3 Páll Melsteð (1912), bls. 70-73.