Ritmennt - 01.01.1998, Blaðsíða 119
RITMENNT
DAGBÆICUR í HANDRITADEILD LANDSBÓKASAFNS
inu, en þessir menn voru handhafar opinberrar menningar og
þeirra var valdalcerfi hins ritaða orðs. í öðru lagi tryggði staða
þeirra varðveislu bókanna fram yfir þá sem minni voru verald-
legra umsvifa. Handrit þeirra og einltaskjöl voru hálfopinber og
því ástæða til að halda þeim til haga. Lagskipting samfélagsins
og verkaskipting lærðra manna og leikra svo og karla og kvenna
takmarkar þannig samsetningu hópsins á tvennan hátt: Annars
vegar hverjir skrifa og hins vegar hvað er varðveitt. Leiða má að
því líkur að ákveðnar breytingar verði á báðum þessum þáttum
í tímans rás og nokkuð samhliða.
Elsta dagbólc sem varðveitt er í handritadeildinni er rituð af
þeirn fræga rnanni Jóni Ólafssyni Grunnvíkingi (1705-99). Frum-
rit þeirrar bókar er reyndar geymt í Konunglega bókasafninu í
Kaupmannahöfn, en hér er um að ræða uppskrift frá upphafi 20.
aldar.3 Dagbókin hefst um nýár 1725 þegar Jón var skrifari Páls
Vídalín lögmanns, og segir í upphafi einkum frá gestakomum að
Víðidalstungu og ferðurn lögmannsins, tengdum málaferlum og
dómsmálum. Færslurnar eru óreglulegar í uppliafi en verða
reglulegri eftir því sem á líður. Síðan segir af siglingu Jóns til
Noregs sama ár og námsdvöl hans í Kaupmannahöfn, en dagbók-
in nær til ársins 1731. Nokkrar dagbækur 18. aldar eru tengdar
vísindastörfum, Jreirra helstar bækur Bjarna Pálssonar (1719-79)
frá rannsóltnarferðum hans og Eggerts Ólafssonar um landið
1753-57 og lækningadagbækur hans frá 1755 til 1761.4 Dagbæk-
ur annars læknis, Sveins Pálssonar (1762-1840), eru einnig að
mestu helgaðar vísindastörfum. Uppistaðan í dagbókakosti hans
eru almanök með dagbókarfærslum og athugasemdum sem varð-
veitt eru frá flestum árum á milli 1779 og 1840.5 Til viðbótar eru
varðveittar veðurbælcur Sveins, annars vegar haldnar í Vík í Mýr-
dal 1812-40 og hins vegar veðurtöflur, skráðar víða um land ár-
ið 1792 og hugsaðar sem eins konar forskrift í veðurbókahaldi.6
Uppskrift sr. Ólafs Ólafssonar
af dagbókum fóns Grunnvík-
ings.
3 Lbs 895 8vo - Dagbók Jóns Ólafssonar Grunnvíkings f uppskrift sr. Ólafs
Ólafssonar frá árinu 1907.
4 ÍB 8 fol - Dagbókarblöð úr ferðum Bjarna Pálssonar og Eggerts Ólafssonar
1753-57. ÍB 9 fol - Lækningadagbók Bjarna Pálssonar 1755-61.
5 ÍB 2-4 8vo - Almanök með minnisfærslum Sveins Pálssonar 1779-87,
1792-99, 1806-12, 1814-29, 1831-36 og 1832-40.
6 ÍB 22-23 4to - „Meteorologiske Optegnelser", þ.e. veðurbækur Sveins Páls-
sonar haldnar í Vík í Mýrdal 1812-40. Þar er á stundum getið daglegra við-
burða. Lbs 306 4to - Veðráttutöflur haldnar af Sveini Pálssyni 1792.
113