Akranes - 01.10.1957, Page 6

Akranes - 01.10.1957, Page 6
um vér söknuð og sársauka hans, er hann verður að viðurkensna, að þetta blóm jarðar sé að fölna. — Hann sér eng- in ráð gegn kúgunarvaidinu. En hann eygir von fyrir því. Von, sem oss mundi sjálfsagt ekki hafa í hug komið, þótt vér sjáum þar af hvert feður vorir hafa leit- að til þess að fá von sinni haldið. Hann segir: Ei hefi’ eg þetta orkt af þvi til óvirðingar þýða. Fyrnist Island fríða. En hann hætir við: Það yngist og blómgast aftur á ný eftir hinn mikla Drottins dóm þá fegrast jarðarblóm. Á leið til himins langar mig því lifa þar Guðs böm fróm. Fyrnist fsland fríða. Mér fannst átakanlegt að lesa þetta í hljóðri næturkyrrðinni, og sjá, hve langt menn hafa fyrir rúmlega þrem öldum orðið að sækja vonir sínar um framtíð landsins. En voninni sleppir hann ekki fyrir því. Þvi að þótt allt annað bregðizt, þá veit hann, að eftir hinn mikla dóm Drottins kernur ný jörð, þar sem rétt- læti býr. Og þá fegrast jarðarblómið — ísland. „Það yngist og blómgast aftur á ný, eftir hinn mikla Drottins dóm, fegrast jarðarblóm", segir hann. Vér finnum þá, hve honum, sem út- lagði síðasta versið i sálmabókinni, hefir verið mikils virði að geta þó haldið þess- ari von, þó að allt annað brygðist. Vér finnum, hversu hann hefir verið tilbúinn að lyfta höfði, móti vorboðanum, þegar dagur Krists nálgaðist. Á vorum dögum verðxnn vér mörg svartsýn, eins og hann, þó af öðrum til- efnum sé. En eygjum vér þá vorboðann sama og hann, ef allt annað kynni að bregðast? Eigum vér þessa þrautavon, sem hann átti, þegar aðrar vonir höfðu brugðizt íhonum? Erum vér, eins og hann tilbúin að lyfta höfðum móti vorboða, þótt allt annað bregðist og farist? Verðum vér ekki miklu fremur að lúta höfði en lyfta þvi? Verðum vér ekki jafnvel mörg í auðmýkt að játa, að vér óttumst það, sem hann gat á byggt sína síðustu von? Hve miklu ifátækari emm vér þá i raun og veru en hann, sem söng sinn vonaróð á dimmri öld, ef oss er þar ótt- inn, sem vonin var hans? En ef svo er, sem vera mun hjá mörg- um af oss, — hver ráð eru þá til þess að eignast þetta, sem hann treysti á? Ég hygg, að vér eigum það ráð í guðspjalli þessa dags. Vér eigum það í þessum orð- um Jesú: Himinn og jörð munu líða und- ir lok, en mín orð munu ekki undir 'lok líða! Því að hvað segja þau orð hans? Þau segja oss þann eimfalda sannleik, að vér megum treysta honum, því að þótt allt annað bregðist, já þótt himinn og jörð fyrirfarist þá er hann samt trúri Hans loforð verða haldin. Hans ást þrýt- ur ekki, því- að fyrirheit hams eru föst. Þess vegna megum vér treysta á þau, livað sem á dynur, og hvernig sem heim- urinn veltist. Þótt heimurinn farist þá standa hans orð. Og þótt himnar hrynji. þá eru loforð hans stöðug. — Því þurf- um vér ekkert að óttast, ef vér treystum á hann. Því að ef vér erum nógu sterk í trúnni, gætum vér, hvað sem oss mætir, tekið undir orð skáldkonunnar og sagt: Gott er oss allt í gleði og sorg. Guð er vor fasta borg. — Treystum þvi honum, biðj- um hann. Vonum á hann. Hann er hið eina, sem fast er. Amen. 21 o A K R A N E S

x

Akranes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.