Akranes - 01.10.1957, Side 41
ings, óska ég honum til hamingju með
allt hið mikla og árangursríka starf, sem
hann hefur unnið öðrum til skemmtunar
í þessu sambandi.
Gísli Þröstur Kristjánsson og Katla
Ölafsdóttir fara hvort um sig með svo
litil hlutverk, að ekki verður af þeim
(Legið, hvort i þeim búa leikarar eða
ekki. Hins vegar er skylt að geta að
makleikum „föður allra hinna“, Gunnars
R. Hansen, sem leikur Maignot mjög
hressilega. Ekki mun almenningur hafa
mikið gagn af orðræðum hans því að
þær fara svo að segja allar fram á
frönsku, en allt er fas hans hið virðu-
legasta enda bera nemendurnir óskipta
virðingu fyrir lionum.
Mjög ánægjulegt var að sjá, hversu
margt ungt. fólk sótti þessa sýningu, enda
má segja, að lífisgleðin færi á kostum í
þessu leikriti Rattigans.
* Sápukúlur.
Gamanleikur í einum þœtti eftir
George Kelly. ÞýSandi: Benedikt
Árnason. Leikstjóri: IndriSi Waage.
Heimdallur hefur, eins og að undan-
förnu, sýnt gamanleik í Sjálfstæðishús-
inu síðari hluta sumars. Efni þessa leiks
er ekki mikið, enda ekki að öðru stefnt
en skemmta fólki brot úr kvöldstund
(45 nn'nútur) áður en dans hefst.
Með leikinn fara þrir þaulvanir leikar-
ar og einn nýliði. Þeir vönu eru: Arndis
Bjömsdóttir, Herdis Þorvaldsdóttir og Ró-
bert Arnfinnsson, nýliðiim er Kristbjörg
Kjeld.
Svipbrigði Róberts Arnfinnssonar eru
með miklum ágætum í einþáttungi þess-
um og tmyndi mér helzt verða minnis-
stætt af því, sem þarna er sýnt, þegar
hann blæs út gúlana i niðurbældri heift
yfir því, sem tengdamóðir hans (Ara-
dís Björnsdóttir segir. Um leik hans, Arn-
dísar og Herdisar þarf að öðru leyti ekki
að fjölyrða, viðfangsefnin eru barnaleik-
ur einn fyrir þa-u. Kristbjörg Kjeld virð-
ist vera liðtæk stúlka á sviði, en hlut-
verkið er of lítið til þess að hægt sé að
dæma um, hvort liún veiti veruleg fyrir-
heit. 1 samanburði við aðrar þjóðir eig-
um við íslendingar ekki nógu góðar
leikkonur, virðist þær einkum skorta
dirfsku og fjör til þess að sý.na virkileg-
an, léttan og eins ástríðuþrunginn leik
þar sem það á við. íslenzk leikkona, sem
losar sig við höftin að því marki sem
við getur átt á sviðinu, ætti að hljóta
mikinn og skjótan frama á vegum þeirra,
sem um leiklist fjalla og kunna að meta
góðan leik.
★ Tosca.
Söngleikur i 3 þáttum. Tónlist Gia-
como Puicini. Leikstjóri Holger Bo-
land. Hljómsveitarstjóri: Victor Ur-
bancic.
Þjóðleikhúsið fer að bessu '• ni giftu-
samlega af stað með því að sýna vinsæda
óperu og tryggja sér hina ágætustu söngv-
ara sem uppi eru meðal Islendinga.
Stefán íslandi hefur fengið leyfi Kon-
unglega leikhússins i Kaupmannahöfn til
þess að koma hingað og syngja hlutverk
Cavaradossi, en það var fyrsta óperuhlut-
verk hans fyrir 25 árum, jiegar hann
lagði opinberlega út á söngbrautina, sem
hann hefur troðið með meiri frama en
aðrír landar hans. Stefán er enn sem fyrr
liinn .fágaði söngvari, sem hrífur alla
með tón.um, sem tilgangslaust er að gera
tilraun til að lýsa með orðum, en þeim
mun meira virði er að iheyra j)á.
Guðrún Á. Simonar og Guðmundur
Jónsson fara með tvö aðalhlutverk. Um
þau þarf ekki að ræða sérstaklega, öll
A K R A N E S
245