Akranes - 01.10.1957, Qupperneq 11

Akranes - 01.10.1957, Qupperneq 11
guðlegt yndi, greini eg, fritt, það gengur vítt og gerir ei nokkum leiðn. Þannig hefur skáldið i Kiim leyft anda sinum að geisa vítt um veröld alla, þótt bágindin og örbirgðin krepptu að heima fyrir. En svo naumur var fjárhagur hans, að hann þurfti við ölmusu, sem hiskup veitti þá fátækustu klerkunum i stiftinu. Er það auðséð, að slík kjör hafa lagzt þungt á hinn stórgáfaða mann. Það sést bezt á vísu einni, sem er ef til vill það persónulegasta, sem vér þekkjum eftir hann. Hún er ort þegar hann flutti að Stað í Kinn, en það hefir sennilega verið árið 1554: Nú er Fúsi koiiiinn i Kinn, kunnugur manni öngum. Hver á !ið leiðn liöldinn inn með hópinn sinn, svo rekkurinn ekki roti sig i gönginn. Undiralda einstæðingsskaparins svellur undir þessum einföldu orðum, þó með einum spæni af kaldhæðni í lokin. Gegn- um vísuna sjáum vér kalda aðkomu fá- ta'ks prests að niðurníddu prestssetri. Hann slendur við bæjardyrnar, skakkar og skældar, með konuna og barnahópinn og áræðir varla mn í göngin, sem eru að falli komin, ef til vill fallin. Oss dettur í hug lýsing Jóns Trausla á aðkomu Ólafs og Höllu að eyðibýlinu Heiðarhvammi. Þannig hafa íslenzkir kotba'ndur og fá- tækir klerkar öld fram af öld komið að hýbýlunum, sem áttu að verða framtíð- arheimili þeirra og barnanna þeirra. Um hinn klerkinn, sem ég ætla að minnast hér á, séra Einar Sigurðsson, sem venjulega er kenndur við Eydali, vitum vér miklu meira. Hann hefir sjálf- ur sagt ævisögu sína í ljóðum, svonefnd- um Ævisöguflokki (sem er prentaður í Blöndu, tímarili Sögufélagsins, 1918— 1920). Flokkur þessi er langur, 210 er- indi. Enn fremur varð séra Einar kyn- sæll mjög, og hafa margir mætir og greindir menn komið fram í ætt hans, og hafa þeir varðveitt minningu þessa ættföður síns með virðingu. Skáldgáfa góð hefir löngum fylgt niðjmn séra Ein- ars. Auk þessa var á hann litið sem höf- uðskóld aldar sinnar. Sumt í ævisögu séra Einars i Eydöl- um minnir á ævintýri, svo skyndilega skipti urn hag hans á miðjum aldri, er hann hófst til mikilla metorða og auð- æfa úr eymd og bágindum. Einar fædd- ist að Hrauni í Aðalreykjadal 1538. Fað- ir hans var prestur, en ekki fylgdi meiri velgengni þeirri stöðu hans en svo, að hann varð að leggja það í sölurnar að gerast prestur í Grímsey til þess að afla Einari syni sínum skólamenntunar. En það þótti tíðum ganga útlegð næst fyrir presta að flytja í slikt útsker sem Grims- ey er. Einar varð prestur kornungur, aðeins 18 vetra gamall, og var vígður aðstoðar- prestur að Möðnjvallaklaustri. Hann tók skjótt saman við konu, og fæddist þeim sonur 1559, þegar Einar var tæplega tvitugur. Sumum hefir nú ef til vill fundizt hinn ungi klerkur verða full- snemma faðir, en það sýndi sig síðar, að þessi sonur var hinn mesti happa- dráttur, og þvi fyrr sem hann var fædd- ur því betra fyrir séra Einar, því að þetta var Oddur, sem síðar varð biskup i Skálholti og hóf þá föður sinn og vandamenn til metorða af mesta kappi, vægast sagt, þvi að mörgum þótti þá nóg um hlutdrægni herra Odds í garð ætt- menna sinna. Séra Emar gegndi siðar Mývatnsþing- um og Nesi í Aðaldal og átti jafnan við þröngan kost að búa þar norðanlands; dró Guðbrandur biskup þó mjög fram 215 A K R A N E S
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Akranes

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.