Akranes - 01.10.1957, Blaðsíða 32

Akranes - 01.10.1957, Blaðsíða 32
•norski presturinn i Milvaukee lætur sér eins annt um íslenzka sem norska og norski presturinn skrifaði einum yfir- manni eða biskup, sem var 80 milur upp á landinu, og biskupinn skrifaði ein- um merkisbónda og beiddi hann fyrir okkur. Til hans fluttum við okkur og strax og við komum til hans, léði hann okkur hús og ofn fyrir ekkert í vetur. Með okkur hafa alltaf verið islenzk hjón, Jón og Karólina norðan úr Hrútafirði. Þau eiga þrjú ung börn. Eitl misstu þau í vetur, sem fæddist í sumar, þau eru í sama húsi, og okkur öllum gefinn matur að lifa á i vetur og við að brenna. Grím- ur lá veikur á hospitalinu í sex vikur og Imba varð veik lika og var flutt á hospi- talið, þar var hún i sjö vikur. Þeim var báðum gefið, þegar þau fóru, alfatnaður nýlegur. Ekkert kostaði að vera í hospi- talinu fyrir þá sem ekki gátu borgað, en 3 dollara um vikuna fyrir þá sem geta borgað og þeir, sem ekkert hafa að lifa á, og enga forþénustu hafa í Milvaukee er skaffaður matur til að lifa. Þar eru margar þúsundir, sem enga forþénustu hafa og hér upp á landinu er ekki golt að fá vinnu í vetur og hér er ekki goldið meir en 10 dollara um mónuðinn, vön- um mönnum, hér npp í landinu. En þeg- ar sumarið kemur ,'fæst 'hér nóg að gera og þá fær vanur og duglegur maður frá 40—50 dollara um mánuðinn, en óvanir ekki undir 20 dollara um mámuðinn. Kvenfólk 1—2 dollara um viku. Ennfrem- ur er lengri vinnutími en i stöðunum og betra þykir flestum að lifa hér á landinu en ó stöðunum. Þó er nú margt, eða flest, með betra verði í borgunum en í smákaupstöðum uj)pi ó landinu, en ný- komnum eða framandi verður það fyrst fyrir að setjast að í borgunum, og þar hitta flestir sína landa. Svo er fyrir is- lenzkum þeir halda sig að norskum eins og þeir væru þeirra landar. Hér er landið mikið fagurt og skemmti- legt, allt flatt með óvala hæðum og skógi sums staðar og skóglausum víðáttum. Hér er ekki mikill skógur, þvi að hér vex ekki greniviður til húsabygginga, hann fæst ekki nær en 100 milur hér vestur í fylkinu. Hér vex mest eikviður og ösp. Hér vaxa ekki aldin eða ávextir, nema það, sem plantað er til, svo sem epli og fleira. Hér verður tekið til vorverka að þrem vikum hér. frá. Þá eru fyrst grafn- ar upp eikur til eldiviðar og til að upp- ra>ta rótina úr ökrunum. Svo hafa bænd- ui- kvikfénað, hesta, kýr, kindur, svín og fugla, sem allt er haft i umgirtum ökr- um að sumrinu, svo ekki gangi það i hveitiökrumum. Sauðkindur eru ekki likar þeim á íslandi. Þær hafa stutta og hrokkna ull og langa rófu, fle.star koll- óttar. Hestar eru hér stærri og sterkari en á íslandi, enda eru þeir brúkaðir svert heila árið fyrir vögnum og plógum, því að hér eru hveitiakrar plægðir haust og vor. Plógurinn rótar jörðinni um likt og stungnir upp kartöflugarðar á Islandi. Hér í þessu fylki fær maður ekki keypt land og ekki nan en 100 mílur hér vestur eða í fylkinu Minnisota. Hér sjást ekki fjöll, því að þau eru ekki nær en fimm eða sex hundruð mílur hér vestur. Hér er hver frjáls að halda sinurn trúarbrögð- um og engir vanvirða aðra fyrir trúna. Hér eru allstaðar frískólar, og allir njóta jafnréttis að ganga í skóla hverrar þjóð- ar, sem þeir eru. Allir njóta jafnréttis ef til laganna er leitað, hverrar þjóðar sem eru. Hér eru allslags þjóðir og hér held- ur hver sinni trú. Við höfum þann sið, eins og á Islandi, að lesa í heimahúsum á hverju kvöldi. Norskum þykir það fallegur siður. Hér (Framhald á bls. 2/3) 236 AKRANES
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Akranes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.