Uppeldi og menntun - 01.01.2011, Blaðsíða 5

Uppeldi og menntun - 01.01.2011, Blaðsíða 5
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 20 (1) 2011 5 frá ritstjóra Fyrsti hluti tímaritsins er viðtal við Jón Torfa Jónasson sem tók við starfi forseta Menntavísindasviðs þegar Háskóli Íslands og Kennaraháskóli Íslands sameinuðust. Í viðtalinu við Jón Torfa, sem nefnist „Samfélagið verður að gera upp við sig til hvers skóli er“, er rætt við hann um lífs- og starfshlaup hans og um sýn hans á menntamál. Jón Torfi á að baki langan starfsferil við menntamál og hefur rannsakað fortíð sem nú- tíð og spáð fyrir um framtíðina. Í viðtalinu lýsir hann viðhorfum sínum til menntunar og spyr gagnrýninna spurninga um helstu viðfangsefni nútímans og úrlausnarefni framtíðarinnar. Auk viðtalsins við Jón Torfa Jónasson eru í heftinu fjórar ritrýndar greinar og fimm ritdómar um sex rit á sviði námsefnis og rannsókna. Ritrýndu greinarnar spanna ólík viðfangsefni á sviði menntunarfræða og fjalla um orðaforða, leikskólastefnur, nám- skrá hönnunar og smíði og loks námsmat í grunnskólum. Þrír dómanna eru um nýjar bækur og námsefni á sviði kynjajafnréttis ætlaðar þremur ólíkum skólastigum, einn dómur er um tvær bækur um tónlistarkennslu og einn er um bók sem lýsir rannsókn á aðstæðum nemenda með þroskahömlun. Heftið sem nú lítur dagsins ljós er fyrra hefti 20. árgangs. Í öllum meginatriðum er fylgt sömu ritstjórnarstefnu og áður, það er greinar eru ritrýndar. Núverandi ritnefnd stefnir þó að því að fjölga ritdómum frá því sem verið hefur. Fáeinar minni háttar breytingar hafa verið gerðar á formi greina, svo sem að bæta við efnisorðum og upp- lýsingum um feril greinar. Tímaritið uppfyllir nú 17 skilyrði af 18 sem tímarit eru metin eftir í stigakerfi fræðimanna í háskólunum. Unnið er að útgáfu tímaritsins á netinu og má nú finna flest hefti þess á vefnum timarit.is eða á vef Uppeldis og menntunar, vefsetur.hi.is/uppeldi_og_menntun. Form- leg útgáfa tímaritsins á netinu verður kynnt síðar en stefnt er að því að allt efni tíma- ritsins, ársgamalt eða eldra, sé aðgengilegt á vef, auk þess sem valið efni er stundum birt strax, t.d. þemaefni um Bolognaferlið í íslenskum háskólum sem birtist í 1.–2. hefti 2010. Leiðbeiningar fyrir greinahöfunda eru nú eingöngu á netinu, bæði á íslensku og ensku. Ritnefnd þakkar öllum sem hafa lagt hönd á plóg við útgáfu þessa heftis. Ritnefnd- in þakkar sérstaklega óeigingjarnt starf ónefndra ritrýna sem brugðust hratt og vel við. Án þess háttar sjálfboðavinnu er útgáfa ritrýndra greina óhugsandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146

x

Uppeldi og menntun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.