Uppeldi og menntun - 01.01.2011, Blaðsíða 59
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 20 (1) 2011 59
BrynJar ÓlafSSon og gÍSli ÞorSteinSSon
alþingismaður á árunum 1886–1900 og reyndi að sannfæra yfirvöld um að kennsla í
handmenntum væri nauðsynlegur hluti alþýðumenntunar (Mikkelsen, 1891b).
Jón notaði hugtakið skólaiðnaður til aðgreiningar frá heimilisiðnaði og til að undir-
strika uppeldislegt gildi smíðakennslu (sjá mynd 4). Skólaiðnaðurinn átti að stuðla að
því að börn yrðu góðir þegnar (sjá mynd 2). Markmið heimilisiðnaðar var hins vegar
að kenna börnum að bjarga sér og jafnvel afla tekna fyrir heimilið (Halldóra Bjarna-
dóttir, 1912). Jón leggur áherslu á mikilvægi menntunar smíðakennara líkt og Mikkel-
sen og Salomon (Jón Þórarinsson, 1891; Thane, 1914). Hann segir að smiðir eigi ekki
að kenna skólaiðnað því þeir skilji ekki uppeldislegt gildi hans. Þessar tvær áherslur
eigi það þó sameiginlegt að stuðla að jafnvægi hugar og handar og kenna nemendum
að nota verkfæri og smíða nytjahluti (Jón Þórarinsson, 1891).
Mynd 4. Myndin sýnir muninn á skólaiðnaði og heimilisiðnaði
Guðmundur Finnbogason fékk styrk frá Alþingi í tvö ár til að kynna sér alþýðu-
menntun í Skandinavíu og dvaldi þar árin 1901–1902. Markmiðið var að móta tillögur
að því hvernig best væri að haga slíkri menntun á Íslandi (Gunnar M. Magnúss, 1939).
Á þessum tíma var farið að kenna bæði uppeldislega smíði og handavinnu sem þátt í
alþýðumenntun í Skandinavíu og var íslenska heitið handmenntir oft notað yfir þessar
greinar. Í bók sinni Lýðmenntun setur Guðmundur Finnbogason fram lista yfir þær
námsgreinar sem hann leggur til að verði kenndar. Ein þessara námsgreina er hand-
menntir. „Þegar á allt er litið, er ef til vill engin hlið alþýðumenntunarinnar alvarlegra
umhugsunarefni en þetta: Hvernig eigum vér að kenna æskulýðnum að „strita með
viti“.“ (Guðmundur Finnbogason, 1903/1994, bls. 105).
Ári fyrir útgáfu Lýðmenntunar birtist í tímaritinu Ísafold grein eftir Guðmund undir
fyrirsögninni „Fyrirmyndarskóli“. Fjallaði hann þar um skóla sem hét Det danske
Selskabs Skole og stofnaður var af C.N. Starcke. Hafði Guðmundur dvalist þar um
mánaðarskeið. Fram kemur í grein Guðmundar að námsgreinum í þessum skóla sé
Betri ríkisborgarar
Virðing fyrir vinnu
aukinn líkamsþroski
efling sjálfstæðis
aukin iðjusemi
Vinnugleði
aukið frumkvæði
Uppgötvun hæfileika
Vera sjálfum sér nægur
afla tekna með handverki
Viðhald hluta
Varðveisla hefða
Stuðlar að jafnvægi
hugar og handar
læra að nota verkfæri
Smíði nytjahluta
áherslur skólaiðnaðar og heimilisiðnaðar
Sk
óla
iðn
að
ur
Heimilisiðnaður