Uppeldi og menntun - 01.01.2011, Blaðsíða 41

Uppeldi og menntun - 01.01.2011, Blaðsíða 41
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 20 (1) 2011 41 anna magnea HreinSdÓttir og JÓHanna einarSdÓttir Skráning fer fram á samtölum í barnahópnum, í samtölum kennari–barn og síðan erum við með opna skráningu í leik og starfi. Og síðan í þemastarfinu, þá skráum við þegar þau eru að ræða saman og þegar þau eru að vinna. Það er lesið yfir og lesið með þeim. Þetta er aðalsmerkið okkar í skráningu í þessari stefnu. Útgangs- punkturinn er það að hlusta á börnin og áhugasvið þeirra og vinna í lengri tíma að einhverju þema [efni] í sköpun og að virkja börnin. Að vinna í gegnum leikinn og sköpun. Finna alla þessa þætti út frá þessu efni sem er í gangi. Við erum með mynd- list og leir og teiknum og finnum upp sögur og vísur. Skráningin þjónaði því margþættum tilgangi en þó aðallega þeim að hlusta á börnin. Skráning var einnig notuð sem upprifjun á reynslu barnanna og var markmiðið að gefa börnunum tækifæri til að líta yfir farinn veg og að tileinka sér nýfengna reynslu. Í umræðum rýnihóps í leikskólanum Kletti kom fram að skráningin væri sá þáttur leikskólastarfsins sem væri hvað helst ábótavant. Ræða þyrfti um tilgang hennar og útfærslu á deildarfundum og reyna að gera hana að eðlilegum hluta starfsins. Lágt hlutfall fagfólks, mikil starfsmannavelta og mannekla voru enn og aftur helstu ástæð- ur sem leikskólakennarar tilgreindu fyrir því að skráning féll niður. Í þeim leikskólum sem starfa samkvæmt Hjallastefnunni var eins og fyrr segir unnið eftir starfslýsingum sem settar eru fram í ritinu Hjallastefnan (Lilja S. Sigurðar- dóttir og Margrét Pála Ólafsdóttir, 2008) og í bókinni Hjallastefnan. Leikskóli frá hugmynd til framkvæmda (Margrét Pála Ólafsdóttir, 1999) sem er handbók og skráðir vinnuferlar. Starfslýsingarnar eru mjög nákvæm uppskrift að því hvernig starfsfólki ber að starfa við mismunandi athafnir dagsins. Þær taka til umhverfis leikskólans og búnaðar, allt niður í smæstu atriði, svo sem dagskrárinnar sem skiptist í valtíma og hópatíma, sam- skipta við foreldra og börn og annarra minnisatriða. Starfslýsingarnar í handbókinni gefa skýr fyrirmæli um hverjir, hvernig, hvenær og hvar hinir fjölbreyttu starfsþættir leikskólans eiga að vera og fara fram. Orðanotkun er athyglisverð í handbókinni en þar er ítarleg lýsing á skipulagi starfsins og eru forsendur fyrir starfslýsingum sagðar vera nákvæm „uppskrift“ að því hvernig kennarar eigi að starfa við mismunandi athafnir dagsins. Rætt er um gildi þess að til séu lýsingar á vinnuferlum og „forritaðar“ ákvarð- anir. Leikskólastjóra Kátakots fannst skýrar starfsaðferðir auðvelda sér starfið: Mér finnst kostur að vinna eftir skýrri skólastefnu, það eru mjög góðar starfslýsingar fyrir allt starfsfólkið og það er mjög auðvelt að fylgja eftir málum. Hér er unnið svona ef það þarf að leiðrétta hluti hjá starfsfólki þá er það svo auðvelt og mér finnst þessi stefna vera svo gagnleg einhvern veginn í svo mörgu. Hún kemur inn á alla þætti bæði hvað varðar foreldrasamvinnu, barnasamvinnu og starfsmannahópinn. Hún nýtist svo vel inn á öll sviðin. Af orðum hennar að dæma eru vinnubrögð starfsfólks „leiðrétt“ ef þau eru ekki í samræmi við starfslýsingar og er því starfsfólki ekki gefið mikið svigrúm til að móta eigin starfsaðferðir. Starfslýsingarnar virka þá sem plagg sem stjórnar því hvernig fólk hagar sér í starfi sínu. Svigrúm var þó fyrir hvern skóla, sem starfar eftir Hjallastefn- unni, að útfæra starfið innan þess ramma sem því er gefinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146

x

Uppeldi og menntun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.