Uppeldi og menntun - 01.01.2011, Blaðsíða 144
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 20 (1) 2011144
En aðeins að efni bókarinnar. Bókinni er skipt upp í átta kafla ásamt heimildaskrá
og hugtakaskýringum. Þar að auki er annáll réttindabaráttu kvenna og jafnréttismála
hafður innan á bókarkápu. Kaflarnir spanna mjög víðtækt efni, allt frá málefnum fjöl-
skyldunnar til umræðunnar um stjórnkerfið og hvers kyns lagaumhverfis jafnréttis-
mála. Nálgunin er femínísk, þar sem m.a. er lögð áhersla á að skoða raunveruleikann
úr frá kynjuðu sjónarhorni. Enn fremur er lögð áhersla á félagslega mótun einstak-
lingsins og því hafnað að kynin hafi ólíkt eðli sem stuðli að ólíkri hegðun, hlutverki og
stöðu þeirra. Kynin mótist nefnilega út frá viðteknum hugmyndum um karlmennsku
og kvenleika. Hugtakið kyngervi er kynnt til sögunnar í hugtakaskýringum bókar-
innar og má segja að það sé lykil grein ingar tæki eða -hugtak hennar, þ.e. að hvers
kyns kynjamunur sé fyrst og fremst félagslegt fyrirbæri og viðhaldið af ríkjandi valda-
stétt. Þessi nálgun kemur skýrt fram í ritinu, t.d. í kaflanum um vinnumarkaðinn og
hversu erfiðlega það hefur reynst að draga úr kynbundnum launamun. Við hefðum
reyndar viljað sjá í inngangi ítarlegri umfjöllun um hin femínísku greiningartæki á
borð við kyngervi, mótunarhyggju o.fl. Enn fremur hefði mátt taka raunhæf dæmi
til að útskýra þessi hugtök sem geta oft og tíðum verið nokkuð flókin fyrir leikmenn.
En væntanlega hefur þurft að skera niður til að láta verkið rúmast innan þess ramma
sem því var ætlað. Er það því hlutverk kennarans að taka við keflinu og fara með
nemendum í gegnum þessi lykilhugtök áður en lengra er haldið.
Flestir kaflarnir eru vel skrifaðir og „kryddaðir“ með ýmiss konar tölfræðilegum
upplýsingum. Einnig eru á hverri síðu áhugavakar eða umræðupunktar sem okkur
þykir henta mjög vel til kennslu. Munum við nú í stuttu máli taka nokkra kafla til
umfjöllunar. Í kaflanum um fjölskylduna er breytt staða hennar á 21. öldinni rædd.
Umfjöllunin þar er upplýsandi og góð að öllu leyti. Þó finnst okkur að ræða hefði
mátt fjölskylduhugtakið aðeins betur því að það er ekki útskýrt nógu vel í kaflanum.
Þar segir til dæmis að vinir eða þá vinkonur sem búi saman fái vanalega ekki fjöl-
skyldustimpil. Hvað er átt við með því? Reyndar er minnst á fjölskyldur samkyn-
hneigðra en ekki útskýrt nánar hvað átt er við með því. Geta ekki samkynhneigðir
verið vinir eða vinkonur og þar með fjölskylda? Gott er að þarna skuli vera minnst á
nýju hjúskaparlögin og að samkynhneigð pör hafi síðan 2006 sama rétt og gagnkyn-
hneigð til ættleiðingar og tæknifrjóvgana.
Kaflinn um skólagönguna er almennt séð góður en þar viljum benda á eina rang-
færslu í tengslum við fjölda kvenna sem gegnt hafa embætti forseta nemendafélags
Verzlunarskóla Íslands. Þegar þetta er skrifað eru þær þrjár en í bókinni er einungis
talað um eina. Einnig hefði mátt bæta við litlum kafla um uppeldi barna og þær ólíku
kröfur og viðhorf til kynjanna sem birtast í umönnun barna frá fæðingu.
Kaflinn um vinnumarkaðinn er vel skrifaður og tengdur þeirri miklu umræðu
sem hefur verið innan samfélagsins um launamun kynjanna. Gott hefði þó verið að
rekja betur sögulegar ástæður þess að konur fóru að streyma út á vinnumarkaðinn
upp úr aldamótum og þá einkum í tengslum við styrjaldarrekstur á 20. öld. Finnst
okkur oft vanta meira sögulega vídd í umfjöllunina og að setja þar með þróunina í
ákveðið samhengi. Enn fremur hefði verið gott að fá einhvern erlendan samanburð
og á það í raun við um fleiri kafla en þennan, t.d. kaflann um stjórnkerfi og laga-
umhverfi jafnréttismála. Þar hefði farið vel á að hafa í áhugavaka þau lönd þar sem
KynUngaBÓK
– VarÐa á Vegi JafnrÉttiSfræÐSlU Í SKÓlUm landSinS