Uppeldi og menntun - 01.01.2011, Blaðsíða 54

Uppeldi og menntun - 01.01.2011, Blaðsíða 54
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 20 (1) 201154 HÖnnUn og SmÍÐi sérmenntaðir iðnaðarmenn (Bennett, 1937). Það myndi tryggja áhersluna á hin upp- eldislegu gildi. Árið 1866 var sett á fót verkleg kennsla í Finnlandi, bæði í kennslumið- stöðvum og alþýðuskólum, og var hún byggð á fyrirkomulagi Cygnæusar (Vaughn og Mays, 1924). Með tilkomu þessa skipulags varð Finnland fyrsta þjóðin til að gera hand- verk að þætti í lögbundinni grunnmenntun (Bennett, 1926; Kananoja, 1989; Kantola, 1997). otto salomon og þróUn slöjd-UppEldisfræðinnar Sænski uppeldisfrömuðurinn Otto Salomon þróaði hugmyndir Cygnæusar áfram undir heitinu slöjd (Jón Þórarinsson,1891; Kananoja, 1989, 1991; Kantola, 1997). Hug- takið slöjd er skylt íslenska orðinu slægur. Upprunaleg merking þess er tengd enska orðinu sleight (samanber „sleight of hand”), sem merkir lævís, lúmskur eða snjall (Borg, 2006; Den danske ordbog, 2003–2005; Nudansk ordbog, 1990). Slöjd tengist skóla- starfi þar sem handverksaðferðir eru notaðar til að búa til hagnýta og fallega hluti. Slöjd er uppeldiskerfi sem byggist á verklegri þjálfun og stefnir að því að efla almenn- an þroska nemandans með því að auka verkfærni hans. Kerfið tengist sérstaklega bæði trésmíði og saumum eða prjónaskap og er vettvangur þess nám í að búa til nyt- sama hluti í höndunum (Borg, 2006; Salomon, 1893). Slöjd fyrir drengi og stúlkur var kynnt á Norðurlöndunum upp úr 1880. Hvert land gaf greinunum sérstakt heiti en innihald þeirra og áherslur voru svipaðar. Til dæmis var uppeldisstefnunni slöjd gefið heitið skólaiðnaður af fyrsta fræðslustjóranum á Íslandi, Jóni Þórarinssyni, en var síðan breytt í námsgreinaheitin smíði og handavinnu og síðar hönnun og smíði og textílmennt (Jón Þórarinsson, 1891; Menntamálaráðuneytið, 1977, 1999). Kenningar Ottos Salomon voru undir sterkum áhrifum frá Cygnæusi (Salomon, 1892) og tileinkaði hann sér t.d. útlistun Cygnæusar á samvinnu hugar og handar (Thorbjornsson, 1990). Cygnæus hvatti Salomon til að lesa skrif Rousseaus, Pestalozzis og Fröbels (Kananoja, 1989). Hann nýtti margar af hugmyndum þeirra til að þróa eigin kenningar og kennsluaðferðir til að kenna handverk í alþýðuskólum Svíþjóðar. Salomon hélt því fram að slöjd-kerfið ætti að vera þáttur í almennri menntun sérhvers nemanda, bæði drengja og stúlkna. Leiðbeinandinn átti að hafa hlotið góða þjálfun í kennsluaðferðum slöjd og vera uppeldislega sinnaður (Bennett, 1937; Jón Þórarins- son, 1891; Thorbjornsson, 1990). Þótt markmið Cygnæusar og Salomons hafi verið svipuð nálguðust þeir viðfangs- efnð á ólíkan hátt. Cygnæusi fannst að glögg skil ættu að vera milli handverks sem væri þáttur í almennri menntun og handverks sem tilheyrði sérhæfðri iðnmenntun eða starfsnámi. Í bréfi Cygnæusar til Salomons 28. október 1877 stendur: Jafnvel þó að við séum sammála um að slöjd sé mikilvægur þáttur í alþýðuskólanum þá held ég að handverksaðferðir eigi að vera talsvert ólíkar í almennum alþýðuskóla og í skóla fyrir sérhæfða iðnaðarmenn. Í alþýðuskólanum verður handverkið fyrst og fremst að vera hugsað, skipulagt og framkvæmt til að koma til móts við þarfir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146

x

Uppeldi og menntun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.