Uppeldi og menntun - 01.01.2011, Page 135

Uppeldi og menntun - 01.01.2011, Page 135
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 20 (1) 2011 135 kRISTÍN DýRFJöRÐ HáSkÓLANUM á AkUREyRI Uppeldi og menntun 20. árgangur 1. hefti 2011 Í hvaða leikskóla varst þú eiginlega? Louise Windfeldt og Katrine Clante. (2009). Þegar Rósa var Ragnar/Þegar Friðrik var Fríða. Akureyri: Jafnréttisstofa og Félags- og tryggingamálaráðuneytið. (Þýðing Þórlaugar Baldvinsdóttur og samstarfsfólks í leikskólanum Lundarseli á Akureyri.) 28 bls. Ég batt miklar væntingar við bókina þegar Rósa var Ragnar/Þegar Friðrik var Fríða eftir þær Louise Windfeldt og Katrine Clante (2009). Jafnréttisstofa gaf bókina út í tengslum við átak um jafnréttisstarf á öllum skólastigum. Bókin var send í alla leikskóla landsins og jafnhliða voru birtar kennsluleiðbeiningar á vef átaksins, www.jafnrettiiskolum.is, sem leikskólakennarar í leikskólanum Lundarseli á Akureyri unnu (Lundarsel, e.d.). En á Lundarseli er áralöng hefð og reynsla af því að kryfja barnabækur og nota í heim- speki með börnum. Í bókinni eru sagðar þrjár sögur, sagan um Friðrik og sagan um Rósu sem vakna morgun einn sem gagnstætt kyn. Fylgst er með þeim einn dag, bæði heima og í leikskólanum. Þriðja sagan er sameiginleg saga þeirra í þykjustuheiminum. Í kynningarefni segir meðal annars: „bókin endurspeglar veruleikann eins og hann er, það er að stelpur og strákar fá mismunandi skilaboð, frá öðrum börnum og frá fullorðnum.“ Sagan er dönsk og sver sig að hluta í ætt við fræga danska barnasögu, Þegar Palli var einn í heiminum. Það má meira að segja velta fyrir sér hvort hún hafi verið samin eftir svipaðri formúlu. En í stað þess að hundruð barna settu niður á blað drauma sína hafi verið farið í rannsóknir á þátttöku kvenna og karla í heimilisstörfum, framkomu kennara við stelpur og stráka o.s.frv. Markmið bókarinnar er að vekja leikskólabörn til umhugsunar og opna umræðu um hlutverk og viðhorf til kynjanna. Mikið er gert úr stöðluðum hlutverkum og klisjum um kynin. Allar konur eru með sítt hár og þær sem sést í fótleggi á eru pils- klæddar. Stelpur búa í bleikum prinsessuherbergjum en stráka dreymir ofurhetjur og þeir eru með bíladellu. Stelpur hjálpa til við húsverk (líka leikskólastelpur), ekki strákar; stelpur föndra og skoða glingur og dreymir Öskubusku en strákar hreyfa sig og þjálfa vöðvana og láta sig dreyma um styrk. Pabbar hlaupa með strákunum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.