Andvari - 01.06.2011, Page 49
andvari
JAKOB BENEDIKTSSON
47
En Jakob skrifaði einnig greinar um einstök orð og íslenskan orða-
forða. I öðrum árgangi íslenskrar tungu var ákveðið að hafa fastan
þátt sem bæri heitið Úr fórum orðabókarinnar. Hugmyndin var að
orðabókarmenn gætu nýtt sér efni stofnunarinnar á einn eða annan
hátt. Asgeir Blöndal Magnússon reið á vaðið og átti greinar í öllum sex
árgöngum tímaritsins. Jakob tók ekki þátt í þessum skrifum fyrr en í
fimmta árgangi þegar hann skrifaði um orðin broðgýgr og broðháfur.
Hann átti einnig grein í sjötta árgangi um orðið dóni í íslensku og leiðir
að því rök að Jón Ólafsson úr Grunnavík hafi fyrstur komið með rétta
upprunaskýringu. í orðabókarhandriti Jóns kemur fram að orðið dóni
sé sennilega runnið frá hjarðljóði Virgils og setningunni „rusticus est,
Corydon“ (þú ert sveitamaður, Corydon). Ljóðið var lesið í latínuskólum
á þeim tíma og því að öllum líkindum í Skálholtsskóla og Jakob getur
sér þess til að þar hafi styttingin dóni og sú merking sem þekkist enn
í dag orðið til.
Þegar tímaritið íslenskt mál hóf göngu sína 1979 var fyrsta heftið
helgað Ásgeiri Blöndal Magnússyni sjötugum. Jakob skrifaði þar
greinina Keppur og liúfa sem tengdist fyrirspurn hans í útvarpsþætti
um heiti á blóðmörskeppum.
Fimm greinar um einstök orð og orðasambönd skrifaði Jakob til við-
bótar þessum. Tvær þeirra voru skrifaðar fyrir Fróðskaparrit sem gefið
er út í Færeyjum. Sú eldri birtist 1964 og er um sögnina hróðrskota
sem kemur fyrir í lausavísu eftir Víga-Glúm en sú yngri birtist 1981
°g tengdist, eins og greinin um kepp og húfu, fyrirspurnum Jakobs um
sláturgerð. Orðin, sem einkum er fjallað um, eru steinblóð og skyndi-
Itfur. I afmælisrit Ole Widding frá 1977 skrifaði Jakob greinina Fáein
°rð úr máli íslenskra skólapilta. Orðin eru fimm, bínarður, gud(d)íu-
laust, prop, rusti og skolíón, sem öll eru afbakanir eða styttingar úr
latínu, sennilega til orðnar í gamni.
Enn ein grein af þessu tagi var skrifuð 1993 í afmælisrit þeirrar sem
þetta skrifar og er um orðasambandið að smíða styr og merkingu og
uppruna orðsins styr.69
Orðfræðileg er einnig grein Jakobs um nokkur litarorð hjá Jónasi
Hallgrímssyni sem hann skrifaði í afmælisrit til Kristins E. Andréssonar
19617° Þar benti hann á að notkun Jónasar á litum væri bæði sérstæð og
serkennileg. í greininni eru dregin fram þau litarorð sem koma fyrir í
kvæðum Jónasar, þau talin og dæmi sýnd um notkun þeirra.
Jakob á einnig ítarlega grein í ritinu Þœttir um íslenzkt mál1x Þannig