Andvari

Volume

Andvari - 01.06.2011, Page 101

Andvari - 01.06.2011, Page 101
andvari DRAMATÍSKT EINTAL f VERKSMIÐJU 99 lífsviðhorf, skoðanir og hugsunarháttur sem sóparinn tjáir eru hugsunarháttur, skoðanir, lífsviðhorf sem lesandi sögunnar þekkir sjálfur af sinni eigin reynd. Til þessa lesanda talar sagan og spyr hvernig hann mundi bregðast við slíkri framtíð - með orðfæri og hugmyndaforða sem gripið er beint úr samtíðinni. Þótt það framtíðarsamfélag sem dregin er upp mynd af í Snörunni hafi ekki „ræst“ fullkomlega skiptir það ekki máli; ádeilan er tímalaus því það mun alltaf verða til fólk sem líkist sóparanum. Jakobína Sigurðardóttir valdi sögum sínum form sem hentaði efninu og það er engin tilviljun að henni þótti „girnilegt“ að nota eintöl og samtöl. Persónur í slíkum textum skapa sjálfar þá mynd sem lesandinn fær af þeim með orðum sínum, gerðum og samskiptum við aðrar persónur, en túlkun, álit og dómar sögumanns á þeim eru í lágmarki eða ekki fyrir hendi. Um leið reynir formið á lesandann sem þarf að átta sig á því hvert samhengið er, hver talar, um hvað, af hvaða tilefni o.s.frv. Þannig verður persónusköpunin öðruvísi en þegar sögumaður segir frá og túlkar, og líkari því þegar við kynnumst fólki og myndum okkur skoðun á því í okkar daglega lífi. Þagnir og það sem ekki er sagt verður meira áberandi, sem og brestir og veikleikar persóna og mis- heppnuð samskipti. Þótt einhverjum hafi þótt skáldsögur Jakobínu orðljótar sagðist hún einungis sækja orðbragð sögupersóna sinna í „lifandi orðasafn“ fólksins í kringum sig; til samfélagins sjálfs." Það gerði hún til að styrkja samtöl og einræður bóka sinna og þann veruleika sem hún skrifaði um. Jakobína skrifaði sögur um venjulegt fólk sem hefur vissulega ýmsa galla - rétt eins og við hin - og hún lagði mikla áherslu á djúpa og vandaða persónusköpun, meðal annars með því að velja rétta frásagnaraðferð. Hinn sérstaki búningur Snörunnar hentar „reiðilestrinum“ ákaflega vel og þótt hvorki sóparinn né frásagnaraðferðin hafi notið óumdeildrar hylli á Snaran tvímælalaust heima í hópi sígildra íslenskra bókmennta. HEIMILDIR Astráður Eysteinsson. 1999. Umbrot. Bókmenntir og nútími. Háskólaútgáfan, Reykjavík. Buchholz, Sabine og Manfred Jahn. 2005. „Dramatic Monologue." Routledge Encyclopedia of Narrative Theory, bls. 124—25. Ritstj. David Herman, Manfred Jahn og Marie-Laure Ryan. Routledge, London og New York. Cohn, Dorrit. 1978. Transparent Minds. Narrative Modes for Presenting Consciousness in Fiction. Princeton University Press, New Jersey. Dagný Kristjánsdóttir. 2006. „Unga, reiða fólkið.“ íslensk bókmenntasaga IV, bls. 603-39. Ritstj. Guðmundur Andri Thorsson. Mál og menning, Reykjavík.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.