Andvari - 01.06.2011, Blaðsíða 88
86
ÓLAFUR ÁSGEIRSSON
ANDVARI
þar sem hvatt var til nýrrar baráttu fyrir breytingum og umbótum, vera „skyn-
samara og hyggilegra“ að leggja niður deilur og flokkadrætti þar til á kæmist
„eitthvert fast og eðlilegt samheldi“ milli þings og þjóðar annars vegar og
stjórnarinnar hins vegar. Forsenda þess væri að fella niður fornan fjandskap
og tortryggni við stjórnina.42 Jóni Sigurðssyni þótti Matthías löngum laus í
rásinni í þjóðmálum en líklega talaði skáldið hér fyrir stórum hópi stuðnings-
manna forseta.
Jón Sigurðsson reyndi hvað hann gat til að halda mönnum við efnið en brast
brátt heilsa. Lokahvatning hans til Þjóðvinafélagsfulltrúa 1877 er dæmigerð:
Af því nú er von á, að alþíng verði haldið í sumar, þá er það nauðsyn að einkum
alþingismenn ráði með sér, á hvern hátt þeir vilja veita félaginu þá liðveislu, sem því
gæti verið að fullum notum. því ekki þykist eg geta gjört ráð fyrir að íslendingar láti
falla um koll þá félagsstofnun, sem þeir rétt aðeins hafa byrjað á með nokkru fjöri, og
mætti verða þeim að hinu mesta gagni.43
Raunsæ eru þó ummæli hans í bréfi til Björns Jónssonar í einu af síðustu
bréfum vorið 1878 en líklega hefur Jón horft til Björns ritstjóra sem hugsan-
legs arftaka sem leiðtoga í þjóðmálastarfi:
Mér þætti vænt að heyra, hvað gengi til að fá nokkurn vöxt í Þjóðvinafélagið. Það er
einhvernveginn öfugur straumur í okkar framkvæmdum og líklega ekki gott viðgerðar,
svo það geti kippzt í lið aftur.44
VI
Eftir fráfall Jóns Sigurðssonar varð enginn til að taka upp merkið. Tryggvi
Gunnarsson varð forseti félagsins og gerði það að hægfara hálfopinberu
útgáfufélagi. Ekki leikur þó á því vafi að fá ef nokkur stjórnmálasamtök á
íslandi hafa látið jafn mikið að sér kveða eða verið jafn ráðandi í stjórnmála-
lífi landsins og Hið íslenska þjóðvinafélag var á árunum 1871-1874.
Þjóðvinafélagið mætti ef til vill skoða sem regnhlífarsamtök: það var
flokkur Jóns Sigurðssonar á þingi; það innihélt leynilega áróðursdeild,
Atgeirinn; það var almennur og opinn félagsskapur, fyrir karla og konur,
ríka og fátæka, framfarafélag á landsvísu; það var net trúnaðarmanna flokks
Jóns Sigurðssonar á landsvísu sem telja mætti kerfisvæðingu eldra óform-
legs tengslanets stuðningsmanna Jóns sem nú var aukið og eflt. Þar á meðal
voru umboðsmenn Félagsritanna enda lá beinast við að Þjóðvinafélagið tæki
við ritinu svo að úr varð Andvari. Eitt veigamesta starf þjóðvina fyrstu árin
og mest raunar áður en félagið komst formlega á laggir var síðan að styrkja