Andvari - 01.06.2011, Blaðsíða 65
andvari
JAKOB BENEDIKTSSON
63
maður félagsins, nefndi í minningargrein, að þau Jakob og Grethe hefðu
veitt fólkinu ýmiss konar fyrirgreiðslu og að heimili þeirra hefði jafnan
staðið öllum opið sem áhuga höfðu á kínverskum málefnum.103 Árið
1975 var haldinn stjórnarfundur og Jakob felldur úr formannsembætt-
inu. Hann tók því ekki illa, fremur en hans var von og vísa, og tók við
stöðu varaformanns. Árið 1994 óskaði hann eftir lausn frá stjórnar-
störfum, eftir fjörutíu ár, og var þá gerður heiðursformaður félagsins.
Jakob fór fyrir sendinefnd íslenskra menntamanna og stjórnmála-
manna til Kína árið 1956 í boði kínversku stofnunarinnar sem annaðist
menningartengsl við erlendar þjóðir og stóð hún frá 11. september til 5.
október. I för voru níu þekktir Islendingar og skrifaði Jakob um ferðina
í Tímarit Máls og menningar sama ár.104 Glögglega kemur fram hve
Jakob hreifst af landi og þjóð. Minnisstæðast þótti honum viðmót fólks,
bjartsýni og dugnaður og hversu almenningur var öruggur um sinn hag.
Sérstaklega hreifst hann af framkomu barna:
Þessi börn, kurteisi þeirra og elskusemi, glaðlyndi þeirra og öryggi, traust
þeirra á sjálfum sér og framtíðinni, hafa síðan staðið mér fyrir hugskotssjónum
sem tákn allrar þjóðarinnar í dag.105
Mun ítarlegri frásögn um ferðina birtist síðar í bók Björns Þorsteins-
sonar Kínaœvintýri sem gefin var út 1979.
Ýmsar viðurkenningar
* ,
Aður en Jakob hélt heim til Islands 1946 var hann gerður heiðursfélagi
í Félagi íslenzkra stúdenta í Kaupmannahöfn. Það sýnir að stúdentar
kunnu að meta allt það starf sem Jakob hafði innt af hendi fyrir félagið,
sérstaklega á stríðsárunum með kvöldvökunum og útgáfu Fróns.
Honum var ekki löngu eftir heimkomuna boðin aðild að Vísinda-
félagi Islendinga. Á þeim árum og lengi síðan var mönnum boðin
aðild þegar að minnsta kosti tveir félagar höfðu mælt með inngöngu og
félagsfundur hafði samþykkt aðildina.
Det kgl. danske Videnskabernes Selskab bauð Jakobi einnig aðild
1961, Det norske videnskaps-akademi 1971 og Gustav Adolfs akadem-
ien 1975. Allar þessar þrjár norrænu viðurkenningar sýna hversu mikils
metinn fræðimaður Jakob var meðal nágrannaþjóðanna.