Andvari

Årgang

Andvari - 01.06.2011, Side 76

Andvari - 01.06.2011, Side 76
74 ÓLAFUR ÁSGEIRSSON ANDVARI lög voru samþykkt, félaginu valið heiti og formaður kjörinn, Jón Sigurðsson, forseti alþingis.1 Hann valdi sér varaformann, Halldór Kr. Friðrikssson alþingismann og yfirkennara við Lærða skólann. Ennfremur voru kosnir 42 fulltrúar fyrir sýslur landsins. Telst 19. ágúst 1871 því stofndagur Hins íslenska þjóðvinafélags. Samkvæmt þessum fyrstu félagslögum var tilgangur félagsins „að reyna með sameiginlegum kröftum að halda uppi landsréttindum og þjóðarrétt- indum Islendinga, efla samheldni og stuðla til framfara landsins og þjóðar- innar í öllum greinum.“ Ennfremur var yfirlýst markmið félagsins að „vekja og lífga meðvitund íslendinga um, að þeir séu sjálfstætt þjóðfélag og hafi því samboðin réttindi."2 Avinna þyrfti þjóðinni frelsi og sjálfsforræði til þess að hún fengi notið sín til allra framkvæmda og framfara. Fyrsta skilyrði væri að fá setta stjórnarskrá er veitti fullt stjórnfrelsi í öllum íslenskum málum: alþingi með löggjafarvaldi og fullu fjárforræði auk landstjórnar í landinu sjálfu með fullri lagalegri ábyrgð fyrir alþingi. Þetta má segja að hafi verið hin pólitíska stefnuyfirlýsing þingmanna og félagsins. Það var jafnframt tilgangur félagsins að auka samheldni og stuðla að framförum, einkum með því að efla bóklega og verklega menntun. Samtök og félagsskapur voru að mati Jóns Sigurðssonar grundvöllur framfara. Bein tengsl væru á milli verklegra framfara og árangurs í stjórnfrelsisbaráttu. Þetta kom vel fram í umburðarbréfi sem Jón ritaði erindreka félagsins, Eggerti Gunnarssyni, bróður Tryggva kaupstjóra, er hann fór um landið sumarið 1872 að hvetja bændur og búalið til þátttöku í Gránufélaginu og Þjóðvinafélagi. Jón hvatti Eggert til að brýna fyrir öllum, hversu náið samband er á milli allra framkvæmda verslunarfélaganna og Þjóðvinafélagsins og hversu þær framkvæmdir hljóti að ... „beina oss veg til að vinna landsréttindi vor og þjóðfrelsi.“3 Á áratugnum á undan hafði gætt talsverðra flokkadrátta meðal hinna þjóð- kjörnu þingmanna í stjórnskipunarmálinu og sumir fyrrum samherjar og stuðningsmenn Jóns Sigurðssonar á stundum tekið öndverða stefnu eða jafnvel snúið við honum baki. Það var Jóni ætíð kappsmál að halda sínum flokki saman og þá vitanlega undir hans leiðsögn. Nauðsyn þess að „halda hóp saman og sundrast ekki“ var boðskapur forseta í samsæti sem honum var haldið í Kaupmannahöfn í október 1865. Var hann þá nýkominn af þingi þar sem flokkur hans hafði í raun riðlast í fjárhagsmálinu og stefna Jóns aðeins unnið nauman sigur með 14 atkvæðum gegn 11. Það var því ef til vill vonum seinna að Jón Sigurðsson og flokkur hans í frelsisbaráttunni kæmu formlegum samtökum á legg. Þetta hafði Jón þegar orðað fyrir Þjóðfundinn 1851. Til dæmis í bréfi til Páls Melsteðs yngra í maí 1850:
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.