Læknablaðið - 01.12.1934, Side 95
LÆKNABLAÐIÐ
181
Eg lét taka mynd af okkur báSum saman, og sýnir myndin glögt, hve
Jóhann er mikill að vallarsýn, í samanburði viÖ meðalmann, eins og mig.
Ennfremur fylgir hér á eftir nákvæm mæling af okkur báSum, og var
hún gerS í samræmi viS mannamælingar próf. GuSm. Hannessonar, af
stud. med. Benidikt Tómassyni.
AS ekki muni enn lokiS vexti Jóhanns, marka eg af því, aS síSan í fyrra
í júlíbyrjun, eSa fyrir tæpu ári síSan, hefir hann stöSugt veriS aS vaxa.
Hann var þá mældur af Sigurjóni héraSslækni í Dalvík, og reyndist 208,8,
þ. e. 9,2 cm. lægri en hann er nú. Hann hefir m. ö. o. hækkaS um 3
þumlung á tæpu ári. (Mæling í haust og viktun nokkrum sinnum síSan,
bendir á, aS vöxturinn hafi veriS nokkuS jafn).
Enginn risavöxtur þekkist annars í ætt Jóhanns, og heldur engin veikl-
un eSa sérleg kvillasemi. Afi hans og langafi voru báSir vel meSalmenn
og þóttu þrekvaxnir og sterkir til burSa, en engir jötnar.
Jóhann er 3. í röSinni af 9 börnum, og ber ekki á að neitt þeirra sé
sérlega þroskamikiS. Fram um fermingaraldur var ekkert áberandi um
vöxt Jóhanns. Hann var aS visu i stærra lagi, en einn drengurinn var
þó stærri en hann. En upp úr fermingunni, eSa nokkru þar á eftir, fór
öllum aS finnast vöxtur Jóhanns ganga fram úr hófi, og jukust honum