Læknablaðið - 01.12.1934, Blaðsíða 124
194
LÆKNABLAÐIÐ
1 nýlegri statistik bentu Saltzein og Sandweiss i Detroit t. d. á þaÖ, að
ekki var unt að gera radical operation (resection) á fleirum en 7,7 af
hundraði þeirra magakrabbameinssjúklinga, er þangað leituðu og lík mun
reynslan vera víðar.
Ef vænta á framfara í diagnosis krabbameins í meltingarfærunum á
byrjunarstigi, þá verða læknar að hafa það hugfast, að ekki tjáir að bíða
eftir venjulegum, typiskum staðbundnum og almennum krabbameinsein-
kennum, heldur verður að gruna þegar hvern þann sjiikling, er þjáist af
þrálátum einkennum frá maga, óvenjulegu hœgðaleysi, lystarleysi, magn-
leysi, megrun 0. s. frv., ekki síst ef um roskið fólk er að rœða, en einnig
á aldrinum 25—45 ára, og muna það, að krabbamein í byrjun getur líkst
svo að segja öllum þektum meltingartruflunum af öðrum orsökum.
En þar með er þó björninn ekki unninn, því nú mæta oss oft í slíkum
tilfellum óviðráðanlegir diagnostiskir erfiðleikar og það jafnvel þótt unt
sé að styðjast við öll nýmóðins hjálpartæki.
Við skulum nú virða fyrir oss og reyna að meta til gildis helstu ein-
kenni krabbameins i maga og þörmum.
Aldur sjúklingsins:
Krabbamein er óneitanlega langalgengast á rosknu fólki, 45—65 ára,
en raunverulega er enginn sérstakur cancer-aldur til og því alrangt að
treysta um of á aldur sjúklingsins í þeim efnurn. Morian* segir t. d. frá
krabbameinsstatistik Payr’s í Leipzig á árunum 1911—1930. Fanst maga-
krabbi á aldrinum 0,1—30 ára í 1,39 af hundraði hverju, er þann sjúk-
dóm hafði og eykst ört úr þvi, svo telja má, að sjúkdómurinn sé orðinn
býsna algengur á milli þrítugs og fertugs.
Aldur sjúkdómsins:
Enda þótt meltingartruflun við krabbamein í meltingarfærum byrji oft
upp úr þurru á rosknu fólki, og hafi staðið þetta í J4—2 ár, er þeir leita
læknis, má ekki gleyma hinu, að alloft hafa sjúklingar þessir haft melt-
ingartruflun áður, en orðið góðir á milli, eða að þeir hafa verið maga-
veikir árum, ef ekki áratugum saman. Þannig halda Saltzein og Sandweiss
því fram, að 4. hver magakrabbi komi upp úr öðrurn magasj úkdómum
og Konjetzny telur sig geta fylgt því mikroscopiskt, hvernig cancer mynd-
ast smátt og smátt upp úr gastritis, aðrir telja cancermyndun upp úr maga-
sárum býsna algenga o. s. frv. Að minsta kosti er ekki unt að treysta að
heldur aldri sjúkdómsins, benign cancer (scirrhus) getur út af fyrir sig
staðið árum saman áður en glögg cancer-einkenni koma fram og sama má
segja um hinn eiginlega idcero-cancer, er hagar sér líkt og ulcus pepticum
og um cancer coli.
Staðbundin subjektiv einkenni eru við byrjandi magakrabba, eins og bent
hefir verið á, algerlega „atypisk“ í flestum tilfellum; minna á einkenni við
gastritis, ulcus, gallblöðrubólgu, meltingartruflanir við berklaveiki, hægða-
leysi, blóðleysi, graviditas o. s. frv. Venjulega fá þeir lystarleysi, einkum
á eggjahvíturíka fæðu, verða fljótt saddir og fá óhægð fyrir bringspalir
bráðlega eftir máltíðir, en aðrir kvarta meira um nábít og skurð eða van-
líðan er þá svengir og sem batnar við að nærast, líkt og venja er við
ulcus. Óverulegt blóðuppkast rekur þessa sjúklinga stundum til læknis, en
* Arch. f. klin. Chir. 1931 Bd. ClXfV, s. 329.