Læknablaðið - 01.12.1934, Page 134
202
LÆKNABLAÐIÐ
gestunum, fara meS þeim til pýramidanna og Heliopolis og upp eftir Níl-
arfljóti. Og að sjálfsögðu standa læknunum opnir allir spítalar og heil-
brigSisstofnanir, og þeim veröur sýnt alt sem merkast þykir í Alexandríu
og Kairo.
AS afstöSnu þinginu standa mönnum til boöa skemtiferöir upp eftir
Níl til Assouan, Luksor, Suez, Port Said og til Gyðingalands og víÖar.
Ferö meö ágætu farþegaskipi frá Marseille eöa Neapel til Alexandríu
og þaðan eftir þingið upp Níl til Assouan og Luksor og til baka aftur til
Neapel eÖa Marseille er áætlað aÖ kosti um 370 eÖa 350 krónur (þ. e.
7790 eÖa 7310 frc. belges), en alt að 17010 frc. belges, eí farið er til Gyð-
ingalands, Litluasíu og Grikklands.
Þeir sem ekki eru meðlimir geta tekið þátt í þinginu, sem gestir, og
borga fyrir þaö IOO frc. belges. Þeir sem vilja gerast nýir meðlimir verða
að sækja um inntöku, og verður á þinginu ákveðið hvort þeir verða
teknir. Umsóknirnar skal senda til mín og mun eg lcoma þeim á framfæri.
Akureyri 8. nóv. 1934.
Stgr. Matthíasson.
p. t. fulltrúi íslands í Soc. Internat.
de chirurgie.
Þorvaldur Blöndal, læknir.
Þorvaldur Blöndal læknir lést á „Sölleröd Sanatorium“ i Danmörku þ.
x. des. 1934.
Hann var fæddur í Stafholtsey í Borgarfirði 16. okt 1903, sonur Jóns
Blöndal læknis og fyrri konu hans, Sigríðar Margrétar f. Björnsdóttur.