Þjóðhagsreikningar 1973-1980 - 01.06.1985, Page 91
-89-
Verg landsframleiðsla
verðlag hvers árs (3)
Mismunur uppgjörs- aðferða í % (3)=(1)/(2)
(1) Ráðstöfunar- uppgjör (2) Framleiðslu- uppgjör
m.kr. m.kr. %
Ár 1973 968 965 0,3
1974 1.411 1.396 1,1
1975 2.013 1.957 2,9
1976 2.856 2.738 4,3
1977 4.119 3.892 5,8
1978 6.396 5.969 7,2
1979 9.439 8.783 7,5
1980 15.180 14.530 4,5
Skv. nýja SNA
1980 15.505 14.530 6,7
Sé litið yfir allt ti'mabilið kemur i' ljós að lands-
framleiðslan hefur rúmlega fimmtánfaldast hvor uppjörs-
aðferðin sem notuð er, hvort tveggja á verðlagi hvers árs.
Niðurstöður ráðstöfunaruppgjörsins sýna þó i'við meiri
aukningu verðmætis en framleiðsluuppgjörið.
Eins og fram kemur i' töflu 1 hefur sú leið verið valin
að sýna ekki tvær raðir um verðmæti landsframleiðslunnar.
Þess i' stað er niðurstöðum ráðstöfunaruppgjörsins fylgt og
verður svo gert i' öllum yfirlitsskýrslum Þjóðhags-
stofnunar. Af þessu leiðir að þegar uppgjörsaðferðunum er
stillt saman kemur fram sérstakur leiðréttingaliður i' fram-
leiðsluhlið, sem nefndur er "mismunur uppgjörsaðferða"
(Statistical discrepancy).
Rétt er þó að vekja athygli á þvi' strax, að þær tölur
sem birtar eru samkvæmt ráðstöfunaruppgjöri þjóðhags-
reikninga hér og i' töflu 1 eru ekki sömu þjóðhagsreikninga-
tölur og fram til þessa hafa verið birtar. Þessar nýju
tölur eru nokkru hærri en hinar fyrri, eins og glöggt má
sjá með samanburði við til dæmis töflu 2 i' töfluviðauka i'
"þjóðarbúskapnum" nr. 7, ágúst 1983. Hækkunina má einkum