Sagnir


Sagnir - 01.05.1982, Page 84

Sagnir - 01.05.1982, Page 84
urpósti, Sunnanpósti og Reykjavíkurpósti finnum við aðeins, þegar bezt lætur, gamal- dags patríótisma. Þar gleyma menn því ógjarnan andartaksstund, að ísland er ein- ungis hluti af ríki og löndum hans hátignar. Mér kæmi ekki á óvart, þó að í ljós kæmi, _ væri það vandlega athugað, að yfirburðir - margra mikilmenna sögunnar séu ekki hvað sízt í því fólgnir, að þeir hafi megnað að samlaga sig þeim hugsjónum eða lífsskoð- unum, sem öðrum fremur megnuðu að lyfta samtíð þeirra og samfélagi. En vitaskuld hef- ur fleira orðið að koma til, sjálfrátt og ósjálfrátt. Jón Sigurðsson Ég man ekki í svipinn eftir sérstöku yfirliti um stefnu Jóns Sigurðssonar með hliðsjón af straumum og stefnum samtiðar hans. En það má einu gilda, um hann hafa svo margir fjallað meira og minna rækilega, að öll nauðsynleg gögn ættu að liggja frammi. Jón er ósvikinn íslenzkur þjóðernissinni — nationalisti — án þess að falla í þá gryfju að loka augunum fyrir öllum blettum og hrukk- um á fati landa sinna. Ekki verður heldur vart hjá honum við Danahatur, þó að oft sárnaði honum við dönsk stjórnvöld, og eins þótt hann virtist hafa meiri skilning á óánægju þýzku íbúanna í hertogadæmunum fyrir 1864 en danska minnihlutans í sömu héruðum. Jóni er greinilega ljóst, að íslend- ingar eru á marga vegu krepptir undan oki vanans, tregðunnar og íhaldsseminnar. En Jón er einnig frjálslyndur, liberal, á borgara- lega og evrópska nítjándu aldar vísu. Yfir- leitt einkennist hann af ofstækislausri stefnufestu og einurð, þó að margt bendi til að hann hafi átt það til að vera óhugnanlega langrækinn. Líkast til hefur hann verið heldur kaldlyndur, án þess þó að vera kyn- ískur. Realpolitiker kann hann að teljast, og vil ég þó ógjarnan skipa honum á bás með Bismarck, þeim stjórnmálamanni, sem likast til hefur öðrum fremur komið óorði á þann eiginleika eða þau einkenni, sem átt er við með þeirri nafngift. Þjóðernissinnuð afstaða Jóns birtist auð- vitað fyrst og fremst í baráttunni fyrir stjórn- arbót, meiri völdum inn í landið og til ís- lenzkra stofnana, i því að fá konung til þess 82 Jón Sigurösson. Ósvikinn íslenskur þjóðernissinni — nationalisti — en einnig frjálslyndur, liberal. að undirrita íslenzkan texta laga, tilskipana og auglýsinga, sem íslendingum var ætlað. Frjálslyndið lýsir sér hvað helzt í baráttu fyrir verzlunarfrelsi í anda Manchester-stefn- unnar. Realpolitik Jóns birtist í ýmsu, sem kynni í fljótu bragði að líta út sem henti- stefna, t.d. þegar hann setur fram reiknings- kröfur sínar með það í huga að geta slegið af þeim, ef annað byðist sem girnilegt mætti teljast. Einnig þegar hann notar sér verkleg- an stuðning við kláðalækningar stjórnarinn- ar, sem hann vissulega aðhylltist sjálfur, til þess að knýja fram baráttumál, sem ekki hafði náð fram að ganga eftir venjulegum leiðum. Þá munu flestir telja það raunsæi- lega afstöðu Jóns, að aldrei virðist hvarfla að honum að stefna á slit á konungssam- bandi við Danmörku. Slíkt þótti öllum, inn- lendum sem erlendum, hrein fásinna fram um 1900 (til 1905?). Benedikt Sveinsson Sennilega er öllu erfiðara að átta sig á Benedikt Sveinssyni en Jóni, en á hinn bóg- inn hefur Gunnar Karlsson prófessor gert rækilega grein fyrir stefnu hans og þing- eyskra fjandvina hans í doktorsritgerð sinni og Oddur Didriksen einnig í ritgerðum sínum í Sögu fyrir rúmum áratug. Benedikt var
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.