Sagnir - 01.06.2009, Síða 21

Sagnir - 01.06.2009, Síða 21
Kristfn Svava Tómasdóttir Sagnir, 29. árgangur 24. oktober 1975 - kvennafrí eða kvennaverkfall? i „...lendingin var kvennafrí - sem var tiltölulega hættulaus hugmynd og rakst vel á forsendum kerfisins!'1 Þann 24. október 1975 lögðu 90% íslenskra kvenna niður vinnu og tuttugu og fimm þúsund manns sóttu á Lækjartorgi stærsta útifund sem haldinn hafði verið á Islandi. Yfirlýst markmið aðgerðanna var að mótmæla almennu vanmati á störfum kvenna og vekja konur til vitundar um mikilvægi vinnuframlags þeirra fyrir þjóðfélagið.2 Hugmyndin hafði fyrst komið fram á Islandi á fundi Rauðsokkahreyfingarinnar árið 19703 og verið orðuð hjá íslenskum kvenréttindakonum við ýmis tækifæri eftir það,4 en var lögð fram sem tillaga á ráðstefnu sem haldin var á Hótel Loftleiðum í tilefni alþjóðlegs kvennaárs Sameinuðu þjóðanna í júnílok árið 1975. Hugmyndin var að konur færu í verkfall einn dag og sýndu þannig fram á hversu ómissandi vinna þeirra væri fyrir samfélagið. Uppástungan vakti harðar deilur og það var ekki fyrr en lagt var til að yfirskrift dagsins yrði frí frekar en verkfall sem sættir náðust5 og samþykkt var með meirihluta atkvæða að skora á konur að „taka sér frí frá störfum á degi Sameinuðu þjóðanna 24. október“.6 Málamiðlunin var ekki gerð átakalaust en aðgerðin var skráð á spjöld sögunnar sem kvennafrídagur og endurtekin undir því nafni árin 1985 og2000. Þótt augljós munur sé á verkfalli og frídegi í hefðbundnu samhengi breyttist inntak aðgerðarinnar ekki með nafnbreytingunni: konur stefndu eftir sem áður að því að leggja niður vinnu. En er hægt að breyta yfirskrift aðgerðar án þess að breyta eðli hennar? Þorgerður Einarsdóttir félagsfræðingur heldur því fram að nafnbreyting kvennafrídagsins hafi verið vendipunktur í hugmyndafræðinni að baki honum. Hún túlkar ákvörðunina sem eðlisbreytingu aðgerðarinnar úr femínískri aðgerð í kvennaaðgerð? Konurnar sem stóðu fyrir deginum hafi ekki lagt í þá ögrun við ríkjandi kerfi sem felst í verkfalli en dregið broddinn úr aðgerðinni með þeirri málamiðlun að kalla hana frí. Kvennafrídagurinn hafi ekki falið í sér nægilegan baráttuvilja og andstöðu við ríkjandi gildi: „Góðar stúlkur fara ekki í verkfall, þær gera ekki kröfur."8 Það er fagnaðarefni að fjallað sé um kvennafrídaginn á gagnrýninn hátt en ekki með saknaðarglýju í augum, en það háir niðurstöðum Þorgerðar að umfjöllun hennar um kvennafrídaginn er ekki ítarlegogrökstuðningurinnþar af leiðandi ekki nógu sterkur. Getur verið að vinnustöðvun 90% kvenþjóðarinnar á einum degi hafi ekki verið ögrandi aðgerð? Voru konurnar að beygja sig undir ok ríkjandi gildismats með nafnbreytingu dagsins? Til þess að svara þeirri spurningu af einhverri sanngirni verður að Kvenréttinda krafist 19
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.