Morgunblaðið - 09.10.2014, Qupperneq 32
32 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2014
Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is
Full búð af
flottum flísum
Hjá Parka færðu flottar flísar
í hæsta gæðaflokki frá þekktum
ítölskum framleiðendum.
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig!
TÆKNI
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Samskipta- og rafeindatækni hef-
ur hin síðustu misseri hafið inn-
reið sína í bíla. Er nú svo komið
að bílar geta „talast við“ í bók-
staflegri merkingu, allt í þágu
slysavarna.
Skynjarar og boðtæki í einum
bíl senda frá sér upplýsingar um
staðsetningu, stefnu og hraða er
tækjabúnaður í öðrum bílum nem-
ur og birtir ráðleggingar sínar á
aðgerðaskjám á hvalbak bílsins og
tölvurnar geta jafnvel tekið yfir
og látið bíl bremsa ef samtal tölva
tveggja bíla skynjar árekst-
urshættu.
Þá hefur tölvutæknin rutt sér
til rúms í öllum stjórnbúnaði bíla
og það nýjasta er að netvæða þá,
einnig í þágu öryggis. Að ekki sé
minnst á, að nú geta bílar jafnvel
ekið sjálfir milli staða án aðkomu
ökumanns; skilað farþegum á leið-
arenda vel og örugglega.
En með tilkomu þessara „snjall-
bíla“, ef svo mætti segja um raf-
einda- og tölvuvæðingu bíla, birt-
ast líka hættur og þær fara
vaxandi. Sýnt hefur verið fram á
hversu auðvelt er með lítilli far-
tölvu að brjóta upp læstan bíl,
setjast inn í hann og ræsa allan
búnað án þess að hafa nokkru
sinni fengið lykil að bílnum. Af
slíku hafa verið sýndar frétta-
myndir, hvernig tölvukeri í aft-
ursæti tekur skyndilega við stjórn
bílsins, beygir og sveigir, gefur í
eða bremsar, allt með hjálp lykla-
borðsins.
Er nú meira að segja svo komið
að jafnvel tölvuþrjótum blöskrar
hin óendanlega og berskjaldaða
tölvuvæðing fólksbílsins og hafa
þeir varað bílsmiði við hættunum.
Þessir tölvukerar eru góðkynja.
Margir slíkir brjótast inn í ann-
arra manna tölvur fyrst og fremst
til að sýna og sanna getu sína, en
aðrir gera það til að skemma og
skaða. Brjótist hinir síðarnefndu
inn í tölvukerfi bíla gæti það ógn-
að lífi og limi ferðalanga.
„Hættan er hlutfallslega lítil
enn sem komið er,“ segir Karl
Heimer, rannsóknarstjóri hjá
stofnun sem fjallar um háþróað
umhverfi bílsmíðinnar, BCAVE.
Þó bætir hann því við, að í bílum
nú til dags sé mikið af tæknibún-
aði sem sumpart er vitað að sé
berskjaldaður.
„Árásum á bíla á eftir að fjölga
mjög,“ segir Heimer.
Á sama tíma og aukin raf-
eindatenging milli bíla þykir eft-
irsóknarverð vegna margvíslegs
ávinnings sem henni fylgir – allt
frá minni slysahættu og upp í
aukna sparneytni – þá hefur hún
upp á margt að bjóða fyrir „þorp-
arana“. Til að mynda hefur banda-
rísk stofnun sem fjallar um öryggi
tölvukerfa í bílum (USCAESS)
sýnt fram á hvernig tölvuþrjótur
getur náð valdi á og rænt bíl gegn-
um svonefnda OBD-II greining-
argátt. Aðrir hafa sýnt fram á
hvernig hægt er að afrita staf-
ræna bíllykla.
Hakkarar til hjálpar
Fjallað var um öryggi bíla á svo-
nefndri Black Hat (Svarthatta)
ráðstefnu í Las Vegas á dögunum
en hún er rannsóknar- og upplýs-
ingavettvangur sérfræðinga í ör-
yggismálum tölvukerfa – og tölvu-
þrjóta. Sýnt var fram á hversu
öryggi bíltölvanna væri ábótavant
og sáu ráðstefnumenn ástæðu til
þess að hvetja bílsmiði til að taka
sig stórlega á og framleiða bíla
sem væru í stafrænu tilliti miklum
mun öruggari en nú væri.
Tilgreindu þeir fimm atriði sem
þeir vildu að bílaframleiðendur
tækju tillit til. Þar á meðal skyldu-
prófanir á hinum stafrænu tólum
bílanna. Einnig að aðgengi yrði
mögulegt að tölvubúnaði bíla svo
rannsakendur gætu af öryggi
dregið veikleika í hugbúnaðinum
fram í dagsljósið og endurbætt
hann. Þá vildu þeir að „svartur
kassi“ yrði í öllum bílum er varð-
veitti gögn um starfsemi þeirra,
stjórn- og vélkerfi þeirra.
Þá lögðu hakkararnir til að skil
yrðu meiri og afdráttarlausari
milli hinna ýmsu þátta í starfsemi
bílanna í hugbúnaðarkerfum
þeirra. „Það myndi tryggja að þótt
tölvuþrjótur brytist inn í upplýs-
ingakerfi bíls gæti hann ekki læst
stýrishjólinu í leiðinni,“ segir Josh
Corman, einn af höfundum bréfs-
ins til bílsmiðanna og stofnandi
samtakanna I Am The Cavalry,
sem fjallar um öryggi í net-
heimum.
Önnur samtök, Change.org,
hvetja bílaframleiðendur og sér-
fræðinga í tölvuöryggi til að sam-
eina krafta sína í þágu bílsmíði.
„Hvern einasta dag treystum við
bílnum fyrir lífi og limum okkar og
okkar nánustu,“ segja samtökin.
Tesla í sérflokki
Tiltölulega fáir bílaframleið-
endur munu hafa gripið til sóma-
samlegra öryggisráðstafana hjá
sér. Rafbílasmiðurinn Tesla er þó
sagður í sérflokki. Meðal annars
birtir hann upplýsingar um alla
veikleika í hugbúnaði og bílkerfum
og réð fyrrverandi helsta örygg-
issnilling Apple, Kristin Paget, til
að öryggisvæða hina nýtískulegu
bíla sína.
Skýrt var frá rannsókn öryggis-
rannsakenda, Chris Valasek og
Charlie Miller, á innbrotsvörnum
24 mismunandi bíla á Svarthatta-
þinginu fyrrnefnda. Þeirra eigin
bílar komu ekki vel út; Infinity
Q50 sem Valasek á og Jeep Chero-
kee í eigu Miller. Fjölda leiða
fundu þeir inn í hugbúnað þeirra
beggja. Einungis var þó hægt að
laumast inn í kerfin á staðnum,
ekki úr fjarlægð og átti það við um
alla bílana 24. En það var fyrir
netvæðingu bílanna og þráðlaust
samband þeirra við umheiminn.
Þeir Valasek og Miller kynntu
einnig stafrænt smátæki sem þeir
smíðuðu fyrir 150 dollara er gæti
reynst gagnlegur gegn tölvu-
þrjótum. Tækinu er stungið í sam-
band í svonefndri OBD2-gátt und-
ir mælaborði. Fyrstu mínútu
akstursins nemur það öll hugbún-
aðarmynstur bílsins, en eftir það
er það stillt á leitarham og nusar
þá uppi hvers kyns afbrigðilegheit
eins og óeðlilegt merkjarunuflæði
eða fyrirskipanir á ferð sem ættu
þá ekki að vera til. Tækið er svo
þeirrar náttúru að slökkva einfald-
lega á viðkomandi kerfishlutum
bílsins þegar tilraun til árásar er
gerð.
Bíða illvirkjar færis?
Engar fregnir eru enn sem kom-
ið er af slysum eða tjóni sem grun-
lausir ökumenn hafa orðið fyrir af
völdum illa meinandi tölvuþrjóta.
Samt er staðhæft, að vaxandi
áhugi sé undir niðri fyrir því að
nýta hugbúnað bíla til skemmd-
arverka og jafnvel manndrápa.
Þykir það eitt og sér kalla á betri
varnir í þeim. Bílsmiðir, tölvu-
þrjótar og bíleigendur sjálfir ættu
ekki að þurfa að bíða eftir ein-
hverjum hörmungaratburði áður
en úr bílöryggi yrði bætt.
Þráðlaus tenging
Ímyndaðu þér, lesandi góður, að
þú sért á 110 km/klst. hraða á
Keflavíkurveginum er stýrið
snýst fyrirvaralaust hart til
hægri. Þú keyrir á eða út af vegna
þess að einhver braust inn í tölvu-
kerfi bílsins. Þetta er ekki lang-
sótt vísindaskáldsaga heldur nær-
tækur framtíðarmöguleiki sem
tölvukerar eru teknir að vara við.
Fæstir gera sér grein fyrir því
að fólksbíllinn er orðinn há-
tæknitölva. Og með netvæðingu
bílanna ofan í kaupið eru þeir
þráðlaust tengdir. Með því að bíll-
inn er orðinn nokkurs konar
snjallsími á hjólum er hann orðinn
öflugt skotmark þrjóta sem til
verka kunna. Það eykur á hætt-
una og dregur úr öryggi að bún-
aðurinn byggir oft á gamallri
tækni. Milli 50 og 100 örsmáar
tölvustýringar sem stjórna til
dæmis stýri, bensíngjöf og
bremsum eru í raun einfaldar og
óburðugar. Þær sannprófa sig
sjaldnast sjálfar; hvort boðin sem
þær fá séu frá bílstjóranum. Þess
vegna getur utanaðkomandi sent
þeim fyrirskipanir. Táknróf bíl-
tölvanna er úrelt og auðvelt er að
eiga við það. Og allir rafeindahluti
í bíl eru samtengdir miðlægu kerfi
_ rétt eins og taugakerfi mannsins
sameinast í hryggjarsúlunni. Sé
knúið að dyrum í einum þeirra eru
líklegt að komast megi í alla hina
líka.
Það er ekki svo, að bílsmiðir
sitji með hendur í skauti; þvert á
móti eru þeir farnir að taka á
vandanum og vinna að lausnum.
Rafeindabúnaður Ford er til að
mynda með innbyggðum eldvegg
til að hindra að átt sé við hann. Þá
er Ford með hóp hakkara á sínum
snærum sem leita stöðugt að veik-
leikum í tölvu- og hugbúnaði bíla
sinna. Á sömu nótum vinnur
Toyota sem laumar öryggisflögum
í örtölvur hingað og þangað um
bílinn til þess að þrengja sam-
skiptabrautir þeirra og draga úr
líkum á heimsókn óboðinna gesta.
Þótti það til marks um framsýni
Toyota að fyrirtækið sendi full-
trúa sína á Svartahatta-ráðstefn-
una til að læra betur á vandamálin
og leita lausna í þeirri upplýsinga-
miðlun sem þar átti sér stað.
Bíllinn er ber-
skjölduð risatölva
Tölvuþrjótar leggja að bílsmiðum að stórauka ör-
yggi tölvukerfa bíla sinna svo lífi og limum ferða-
langa verði ekki stofnað í hættu
Tölvukerfi götunnar Bílar munu tala saman í
framtíðinni í þágu umferðaröryggis og slysavarna.