Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2006, Blaðsíða 13
„SVO SEM í SKUGGSJÁ, í ÓLJÓSRI MYND“
um kosningum og lýðveldisstofnun árið 1994.8 Síðan verða skoðaðar
greiningar- og þekkingaríræðilegar hliðar á slíkum málum varðandi lest-
ur sem túlkun.
Mynd 2 er blaðsíða úr uppkastinu að Vereeningen-samningnum sem
batt enda á stríðið í Suður-Afríku þann 1. júní 1902. Hér má sjá breyt-
ingar þær sem fubtrúar Búa9 gerðu á 8. greininni sem fjallaði um svarta
og kosningarétt. I upphaflegu gerðinni, sem er vélrituð og Bretar höfðu
samið, var gert ráð fyrir að svartir myndu fá kosningarétt efdr að inn-
limuðu Búaríkin, Transvaal og Free State, fengju sjálfstjórn. Það var hins
vegar umritun fulltrúa Búanna á greininni sem rataði í hina endanlegu
gerð samningsins og leiddi til þess að merkingin breyttist úr: „svartir fái
kosningarétt síðar“ í „fái alls ekki“.
Breytingamar sem sjást á mynd 2 höfðu mikil og víðtæk áhrif á kyn-
þáttapóhtik í Suður-Afríku eftir þetta, og reyndar fyrir alla heimsbyggð-
ina á meðan á refsiaðgerðum gegn aðskilnaðarste&iunni stóð. Þar af
leiðandi skilja flestir lesendur í dag hversu mikilvæg ritun og umritun er
í tengslum við þetta ákveðna skjal. Almennt séð, og einkum eftir að bók
Michel de Certeau, The Writing ofHistory, kom út, og þar á undan bæk-
umar The Historian’s Craft eftir Marc Bloch, Writing History eftir Paul
Veyne og Metahistory eftir Hayden White, þá er ekki lengur hægt (ef það
var þá nokkum tifnann hægt) að h'ta á söguritun í saklausu eða bamslegu
ljósi,10 og sú lexía hefor styrkst við áhrif póststrúktúralískra kerminga á
undanfömum ámm á að minnsta kosti sum svið sagnfræði.
8 Einnig nefiit Búastríðið. Sjá nánar skrif mín um stríðsminningar í Liz Stanley, Moum-
ing Becomes... Post/Ivlemory and, Commemoration ofthe Soutb African War, Manchester:
Manchester University Press, 2006. Varðandi stríðið í Suður-Affíku er lykilverkið enn
sem fyrr bók S.B. Spies, Methods of Barbarism: Roberts, Kitchener and Civilians in the
Boer Repnblics January 1900-May 1902, Kaapstad, South Africa: Human and Rous-
seau, 1977; endurútgefin 2001; önnur gagnleg verk í anda „endurskoðunar“ og gefin
voru út í kringum síðustu aldamót eru m.a. Bill Nasson, The South African War
1899-1902, London: Amold, 1999; Donal Lowry, The South African War Reap-
praised, Manchester: Manchester University Press, 2000; Greg Cuthbertson, Albert
Grundlingh and Mary-Lynn Suttie, Writing a Wider War, David Omissi and And-
rew Thompson (ritstj.), The Impact ofthe Soutb African War, Basingstoke: Palgrave,
2002.
9 „Búi“ eða „boer“ þýðir bóndi í bókstaflegri merkingu, og þá í merkingunni evrópsk-
ur og hvítur bóndi, en þetta orð notuðu margir innfæddir Suður-Afríkumenn af evr-
ópskum uppruna (e. Afrikaner) um sjálfa sig á þessum tíma.
10 Michel de Certeau, The Writing ofHistory, New York: Columbia University Press,
1975/1988); Marc Bloch, The Historian’s Craft, Manchester: Manchester University