Þjóðlíf - 01.07.1990, Page 19

Þjóðlíf - 01.07.1990, Page 19
INNLENT Sigrún Júlíusdóttir. Enn sorglegra ertilþessað vita aðstundum dugarþetta dýrkeypta streð ekki til þess að endar nái saman eins oghúsnæðis- og barnagæslumálum er háttað. ÍSLENSK ÞVERSTÆÐA Mikíl vinna en ánœgjulegt einkalíf Islendinga. Fjölskyldurannsókn Sigrúnar Júlíusdóttur félagsráðgjafa leiðir margt athyglisvert í Ijós Vítahringur sem margir þekkja: Börnin fá ekki dagvist nema 3 klukkutíma á dag og eiginkonan getur ekki unnið úti. Eig- inmaðurinn vinnur þess vegna langan vinnudag og er gjarnan í tvöföldu starfi. Einkalífið situr á hakanum. Og hér er komið að íslenskri þverstæðu: Sum hjón virðast ánægð með hlutskipti sitt þrátt fyrir að vera lítið saman. Það er þó ekki allt sem sýnist. Sigrún Júlíusdóttir, yfirfélagsráðgjafi á Geðdeild Landspítalans, er kunnug fjöl- skylduháttum íslendinga. Frá árinu 1972 hefur hún starfað að fjölskylduráðgjöf og er núna langt komin með viðamikla rann- sókn um háttu og hagi fjölskyldunnar. Sigrún segist furða sig á elju og bjart- sýni Islendinga „sem jaðrar við óraun- sæi.“ Hjón gera miklar kröfur til sjálf sín, vilja afla heimilinu tekna til að standa und- PÁLL VILHJÁLMSSON ir húsnæðiskaupum samtímis sem þau leggja áherslu á að koma börnunum til manns. Til að mæta þessum kröfum vinn- ur annar aðilinn, oftast karlmaðurinn, langan vinnudag á meðan konan er bróð- urpart dags heima með börnin. — Þegar hjón voru spurð um hvað myndi bæta fjölskyldulífið nefndu þau oftast betri dagvistun fyrir börnin og minni vinnu eiginmannsins, segir Sigrún. Þrátt fyrir þessar óskir virðast hjónin al- mennt sátt við sína hagi og of fáar sam- verustundir gera þau ekki vansæl. Hins- vegar segjast tvær af hverjum þrem kon- um vera óánægðar með mikla vinnu og fjarveru eiginmannsins þó að þær láti sér það lynda til að sameiginlegum markmið- um verði náð. Fjölskyldurannsókn Sigrúnar má skipta í tvo hluta. Ásamt Gylfa Ásmunds- syni sálfræðingi sendi hún árið 1985 226 hjónum ítarlegan spurningalista. Þau fengu samþykki þátttakendanna og tryggðu þeim nafnleynd. Þrátt fyrir tvö ítrekunarbréf svöruðu ekki nema 113 hjón spurningunum. Sigrún og Gylfi telja að ein skýringin á þverstæðunni leynist í þeim fjölda sem ekki svaraði spurningunum. Þau benda á í skýrslu sinni, sem Jafnréttisnefnd Norð- urlandaráðs (JAMFO) gaf út í bókinni Nordic intimate couples — Love, Childr- en and Work, að sennilega hafi þau hjón sem ekki svöruðu átt við meiri erfiðleika að stríða en hin sem skiluðu spurningalist- anum. Reynsla erlendis og einnig rann- sókn sem Gylfi gerði á áfengisdrykkju landsmanna fyrir 10 árum gefur tilefni til að álykta að þeir sem svara ekki persónu- legum spurningum um aðstæður sínar eru ÞJÓÐLÍF 19
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.