Þjóðlíf - 01.07.1990, Blaðsíða 45
áður. Dómurinn yfir fólkinu byggðist ein-
göngu á játningum þess við yfirheyrslur
hjá lögreglunni.
Frá upphafi voru efasemdir um dóminn
og eftir áralanga baráttu ættingja og stuðn-
ingshópa víða um land fyrir upptöku
málsins var það loks tekið fyrir af sérstök-
um dómstóli í fyrra. Hann úrskurðaði að
játningarnar hefðu verið falsaðar af lög-
reglunni á sínum tíma og hefðu lögreglu-
yfirvöld frá upphafi falið mikilvæg gögn í
málinu, sem beindu gruni að öðrum
mönnum. Fimm lögreglumenn voru við-
Lýst eftir nýrri tegund af Iögreglu.
riðnir yfirheyrslurnar og hefur þrem sem
enn eru í lögreglunni verið vikið úr starfi
um stundarsakir meðan framferði þeirra
er rannsakað, m.a. ásakanir um misþyrm-
ingar á sakborningum.
Einn Guildford félaganna, Gerard
Conlon, sagði við yfirheyrslur á sínum
tíma að á heimili frænku hans og frænda,
Annie og Paddiy Maquire hefðu verið
búnar til sprengjur og eftir mikla lögreglu-
rannsókn og yfirheyrslur voru sjö manns
ákærðir fyrir hryðjuverkastarfsemi, þar á
meðal Maquire hjónin og synir þeirra tveir
á unglingsaldri. Öll sjö voru fundin sek
um að eiga aðild að sprengjugerðinni á
heimili hjónanna og dæmd til fangelsis-
vistar frá 4 upp í 14 ár. Eina sönnunar-
gagnið var nítróglyserín sem fannst á
höndum þeirra sem þótti sanna að þau
hefðu staðið að sprengjugerð. Á meðal
hinna sjö dæmdu var faðir Gerards Con-
lon, Giuseppe, en hann lést í fangelsi árið
1980. Nú fyrir skömmu var málið tekið
upp hjá dómstólunum að nýju og úrskurð-
að að sönnunargögnin í málinu væru óör-
ugg. Nýtróglyserínið var ekki talið bendla
fólkið ótvírætt við sprengjugerð, m.a.
vegna þess að ekki þurfti annað en að hinir
ákærðu hefðu komist í snertingu við ann-
að fólk eða handklæði í baðherbergi með
þessu efni til að mælast með það.
Endurskoðun á öðrum mikilvægum
sakamálum þykir ekki ósennileg á næst-
unni. Úrslit Guildford- og Maquire mál-
Lögregla nýja tímans:
óeirðalögregla í
verkfallsátökum við
prentara í Wapping.
anna hefur aukið þrýsting á yfirvöld að
taka einnig til endurskoðunar mál „Birm-
ingham-félaganna sex“ sem dæmdir voru í
lífstíðarfangelsi árið 1976 fyrir sprengjutil-
ræði tveim árum áður. Hinir dæmdu hafa
haldið því fram að þeir hafi verið pyntaðir
til að játa á sig glæpinn, en þegar málið var
tekið fyrir hjá áfrýjunardómstóli 1988 var
ekki talin ástæða til að hnekkja upphafleg-
um dómi. Upptaka málsins nú hefur feng-
ið enn frekari stuðning við það að síðast-
liðinn vetur var leyst upp deild sem sá um
alvarlega glæpi innan West Midlands lög-
reglunnar, en þar á meðal voru einmitt
lögreglumenn sem tóku þátt í rannsókn-
inni á máli Birmingham-hópsins. Nú
stendur yfir rannsókn á misferli innan
deildarinnar, sem sökuð er m.a. um föls-
un sönnunargagna og fyrir að hafa borið
ljúgvitni og er þessi slóði talinn ná 13 ár
aftur í tímann.
Þótt dómurinn í máli Birmingham-
hópsins þyki á traustari gögnum byggður
en í Guildford og Maquire málunum, eru
sterkar efasemdir á sveimi sem voru
magnaðar enn frekar með heimildamynd
um málið á ITV sjónvarpsstöðinni fyrir
skömmu. Þar voru leidd rök að því að þeir
sem nú sitja inni hafi ekki framið ódæðis-
verkið heldur fjórir aðrir írar, sem voru
meira að segja nafngreindir í þættinum.
Annar dómur, sem miklar efasemdir
eru uppi um, varðar morðið á Blake-
lock lögregluþjóni í óeirðum í Tottenham-
hverfi í London 1985. Þrír ungir menn
voru fundnir sekir um morðið, dæmdir
eingöngu eftir játningum á lögreglustöð.
Reyndar játaði „höfuðpaurinn“, Silcott
að nafni, aldrei beinlínis á sig verknaðinn,
en orðalag hans við yfirheyrslu, skjalfest
af lögreglumönnum en ekki staðfest af
honum sjálfum með undirskrift, var talið
sanna sekt hans. Nú hefur lögreglu-
þjónnninn sem stjórnaði rannsókninni á
morðinu verið dreginn fyrir agadómstól
innan lögreglunnar vegna ólöglegrar með-
ferðar á einu vitnanna í málinu. Og þannig
hrannast málin upp eitt af öðru sem gefa
til kynna eitthvað verulega rotið innan
lögreglunnar.
0
ÞJÓÐLÍF 45