Þjóðlíf - 01.07.1990, Blaðsíða 103
Minna af gulli
Eftir margra ára offramboð af
gulli á heimsmarkaði er nú
talið að minna framboð verði
á því á næstu árum. Fag-
menn búast við að í öllum
vestrænum framleiðslulönd-
um verði dregið úr fram-
leiðslu hins gula málms.
Verðið er komið niður í um
400 dollara á únsu, en fram-
leiðslukostnaðurinn er í kring-
um 350 dollara. Þá á ýmiss
kostnaður eftir að bætast við,
þannig að framleiðslan borg-
ar sig tæpast. En þó að fram-
leiðslan dragist saman er
engin hætta á að skortur
verði á heimsmarkaði á hin-
um dýra málmi. Sérfræðingar
telja að Sovétríkin muni sjá til
þess að framboð verði nægt:
þar verði að vísu ekki hægt að
framleiða mikið meira en nú
er gert af tæknilegum
ástæðum, en vegna gífur-
legrar gjaldeyrisþarfar Sovét-
ríkjanna muni þau reyna að
selja sem mest af gulli á
næstunni...
(Spiegel/óg)
Pólskir smyglarar
Að undanförnu hefur farið
mikið orðspor af Pólverjum í
fríverslun einstaklinga víða
um Evrópu. Þeir hafa verið
sakaðir um smygl og óheiðar-
lega viðskiptahætti og sums
staðar hefur skapast mikil
andúð í garð pólskra verslun-
armanna, sem hafa notað
frelsið til að selja pólskar vör-
ur erlendis, kaupa góss og
flytja heim. Pólskir svarta-
markaðsbraskarar og smygl-
arar eru því orðnir alræmdir
frá París til Istanbul. Nýverið
var 12 manna hópur Pólverja
handtekinn í Nepal vegna til-
raunar til að smygla 28 kg af
gulli og fjölda rafmagnstækja
samtals að verðmæti yfir 30
milljónir króna úr landi. Sam-
kvæmt upplýsingum pólska
utanríkisráðuneytisins hafa
þrjátíu þúsund fríverslunar-
menn komist í kast við lögin...
(Spiegel/óg)
Hinn tæplega sextugi Gorbatsjof var á fjölda auglýsingaskilta íMinneapolis sýndurþar sem hann greip eftir
áfengisflösku. Bandaríska fyrirtxkið sem stóð fyrir þessu uppátxki var þar með að vísa til erfiðleika
Sovétleiðtogans heima fyrir, bæði með ílokkinn og eins hitt að Gorbatsjof hefur verið í forsvari fyrir
fyrirferðarmikilli en árangursh'tilli herferð gegn áfengisneyslu í Sovétríkjunum. Áður en Gorbatsjof kom í
heimsókn til Bandaríkjanna féllst fyrirtækið á að taka þessa, að flestra mati, ósmekldegu auglýsingu niður.
Einskismannsland.
Einskismannsland til sölu
í hafinu milli Portsmouth og
Isle of Wight er sérstætt ból-
virki með kastala, lendingar-
plássi fyrir þyrlur, tennisvöll-
um, sundhöll og sitthverju
fleiru. Þetta virki er 130 ára
gamalt og þaðan átti að verj-
ast innrásum Frakka á suður-
enskar hafnarborgir. Þetta
heitir „No man’s land“
— Einskismannsland og
breska krúnan hefur selt fjár-
málamanninum Roger Pen-
fold virkið og hann hefur inn-
réttað það með gistiherbergj-
um, matsal,
tónlistarherbergjum og svo
framvegis. Virkið á nú að
kosta um hálfan milljarð
króna og segir Penfold að
áhugasamir séu umfram
aðra fjárfestar frá Austurlönd-
um nær og fjær...
Bitist um
samvinnu-
fyrirtækin
Eins og áður hefur verið sagt
frá í viðskiptadálkum Þjóðlífs
hefur Co-op keðjan eða
„Sambandið" í V-Þýskalandi
átt í gífurlegum erfiðleikum.
Nokkrar verslunarkeðjur hafa
lýst áhuga sínum á að komast
yfir hluta framleiðslunnar og
verslana í eigu v-þýsku sam-
vinnuhreyfingarinnar. Það
nýjasta er að austur-þýska
Sambandið, sem heitir Verb-
and Deutscher Konsumgen-
ossenschaften skammstafað
VDK, hefir lýst áhuga sínum á
að gerast meðeigandi ásamt
einhverri þeirra vestrænu
verslunarkeðja sem hafa
verið í samningaþófi um þátt-
töku. Að sögn hyggst VDK
greiða sinn hlut, 500 milljónir
marka, með því að fá lán
vestanmegin og leggja jarð-
næði og eigin verslanakeðju
eystra í púkkið...
(Spiegel/óg)
Leynilögreglan í flugið
Austur-þýska flugfélagið
Interflug, sem ætlar sér um
fjórðungshlut í Lufthansa
eftir sameiningu ríkjanna,
hefur boðið nokkrum fyrr-
verandi meðlimum hinnar
illræmdu leynilögreglu Stasi
vinnu. Talsmenn fyrirtækis-
ins hafa viðurkennt að um
70 fyrrverandi starfsmenn
Stasi hafi verið skólaðir til
starfa hjá flugfélaginu. ...
ÞJÓÐLÍF 103