Þjóðlíf - 01.07.1990, Blaðsíða 90
ÞJÓÐFÉLAGSMÁL
GORBATSJOF
MILU TVEGGJA ELDA
Harðlínumenn og róttœklingar sœkja að sovétleiðtoganum. Stórveldið að líða
undir lok. Vonir um endurfœðingu lýðrœðislegra sovétlýðvelda
Staða Gorbatsjofs Sovétleiðtoga er
mjög í óvissu þegar þetta er skrifað
skömmu fyrir 28. flokksþing Kommún-
istaflokks Ráðstjórnarríkjanna. Meiri
líkur eru þó á því að mati fréttaskýrenda
að Gorbatsjof takist enn eina ferðina að
koma niður standandi og að harðlínu-
menn í flokknum hafi sig hæga um hríð.
taða sovétlýðveldanna er orðin snar
þáttur í umræðu og stjórnmálum í
Sovétríkjunum og utan þeirra. Þannig
telja menn nú líkur á að lykillinn að lausn
stærstu vandamála sem
Gorbatsjof stendur frammi
fyrir liggi einmitt í sáttum
um stöðu lýðveldanna. Nú
hafa lýðveldin hvert á fæt-
ur öðru lýst yfir fullveldi,
og sérstaklega yfirráðum
yfir auðlindum sínum.
Þannig er framtíðarstaða
lýðveldanna ekki einungis
spurning um sjálfsákvörð-
unarrétt þjóða, heldur og
efnahagslíf í Sovétríkjun-
um öllum — og auðvitað
um tilverurétt ríkjasamb-
andsins sem lengi vel hefur
kallast Sovétríkin.
Sovétríkin hafa þegar
tapað baráttunni um for-
ystuhlutverk í heiminum
og þau hafa opnast fyrir bandarískum
áhrifum. En þó Sovétríkin hafi glatað
stórveldishlutverki sínu hafa Bandaríkin
ekki tilefni til að hrósa sigri. Með endalok-
um tvíveldisins virðist staða Bandaríkj-
anna heldur veikjast — sameinuð Evrópa
fyllir í skarðið og gott betur. Þetta telja
margir ástæðuna fyrir því hve hægt
Bandaríkjamenn vilja fara í sakirnar gagn-
vart Sovétríkjunum.
Þegar þetta er skrifað hafa Úkraína,
Rússland og Moldavía lýst yfir fullveldi,
hvert með sínum hætti. Eystrasaltsríkin
sem voru innlimuð í annað sinn í Sovétrík-
in í byrjun síðustu heimsstyrjaldar með
hinum illræmda samningi Stalíns og Hitl-
ers, hafa jafnframt lýst yfir sjálfstæði. í því
samhengi skiptir frumkvæði Litháens
mestu.
Litháar hafa víða mikla samúð, sérstak-
lega í Bandaríkjunum, og af þeirri ástæðu
hefur Litháen verið eins og þröskuldur í
vegi fyrir efnahagsaðstoð sem Sovétríkin
verða að fá að vestan, ef einhver von á að
vera í uppbyggingu markaðsbúskapar
þar. Þess vegna hefur Gorbatsjof lagt kapp
á að leysa Litháen-málið. Hann reyndi það
eftir mætti fyrir leiðtogafundinn með
Bush Bandaríkjaforseta í maí. Það tókst
ekki, og þess vegna var ekki gerður víð-
tækur viðskiptasamningur eins og Sovét-
menn vonuðust eftir. Til stóð að Sovétrík-
in fengju stöðu ríkja sem njóta „bestu
kjara“ í viðskiptum við Bandaríkin, en
varð ekki úr af sömu ástæðu. Reyndar
segja skoðanakannanir að tveir af hverjum
þremur Bandaríkjamönnum telji ekki
ástæðu fyrir Bandaríkin að skipta sér af
Litháendeilunni, en stjórnvöld sjá málið í
öðru ljósi.
Nú stendur fyrir dyrum leiðtogafundur
sjö helstu iðnríkja heims. Líkt og á öðrum
leiðtogafundum vestrænna ríkja verður
tekin afstaða til þess, með hvaða hætti
þessi ríki geti á næstunni aðstoðað Sovét-
ríkin og önnur austur-Evrópuríki við upp-
byggingu. Frakkar og Vestur-Þjóðverjar
hafa lagt mikið upp úr því að koma á fót
virkri efnahagsaðstoð og þá sérstaklega
við Sovétríkin. Ástæðan er einfaldlega sú,
að ófriður eða valdataka harðlínumanna í
Sovétríkjunum gæti gert ástandið í
Evrópu ótryggara og komið í veg fyrir þá
framtíðarskipan sem þessi ríki hafa verið
að vinna að, þ.á.m. Evrópubandalagið.
andaríkin hafa verið treg til að gefa út
afdráttarlausar yfirlýsingar um
stuðning við umbætur í Sovétríkjunum og
þar með vakið ugg í brjóst-
um marga Evrópubúa.
Sumir fréttaskýrendur telja
að hér sé ekki aðeins um
leik að eldi að ræða, heldur
og beinlínis hagsmunapóli-
tík Bandaríkjanna:
„Evrópuríkin mega ekki
verða of sterk og voldug of
fljótt og setja Bandaríkin
aftur fyrir sig.“
Bush hefur sagt að
Bandaríkin muni ekki
leggja til neinar ráðstafanir
eða fjármagn til Sovétríkj-
anna á væntanlegum leið-
togafundi iðnríkjanna sjö í
Texas. Vestur-Þjóðverjar
vilja afdráttarlaust rétta
Gorbatsjof hjálparhönd,
bæði vegna áðurnefnds öryggis Evrópu
sem og til að liðka fyrir samningum um
stöðu sameinaðs Þýskalands í Nató.
Litháen málið er enn óleyst og veldur
Gorbatsjof vanda bæði innan og utan-
lands. Nái hann samningum við Litháa er
hins vegar líklegt að allsherjarsamkomu-
lag takist um stöðu lýðveldanna innan
Sovétríkjanna. Þá yrði einnig auðsótt að
afla þess gífurlega fjárstuðnings sem þörf
er á við uppbyggingu í Sovétríkjunum.
Bandaríkjastjórn er mjög á báðum átt-
um gagnvart Gorbatsjof. Sú skoðun þekk-
ist að betra sé að bíða og sjá hvort menn á
borð við Jeltsín nái völdum, við þá sé
betra að semja. En á hitt er og að líta að
vinsældir Gorbatsjofs eru með ólíkindum í
Sovéska þingið. Hér getur allt gerst.
90 ÞJÓÐLÍF