Þjóðlíf - 01.07.1990, Blaðsíða 20
Heill og hamingja fjölskyldunnar er háð því hvernig gengur með börnin. - Meðalvinnutími
fyrirvinnunnar í fjölskyldurannsókn Sigrúnar og Gylfa reyndist vera 56 vinnustundir á viku.
INNLENT
líklegri til að eiga í vandræðum en hinir
sem eru tilbúnir til að svara.
í annan stað má leita skýringarinnar í
menningu okkar.
Vinnan er í hávegum höfð á íslandi og
vinnusemi talin til mannkosta. Sigrún
fjallaði um rannsóknina á málþingi í Sví-
þjóð og þar furðuðu norrænir fræðimenn
sig á vinnugleði íslendinga. Meðalvinnu-
tími fyrirvinnunnar í rannsókn Sigrúnar
og Gylfa er 56 klukkustundir á viku, en
það er langt fyrir ofan það sem þekkist í
nágrannalöndum.
Þegar fyrst fréttist af niðurstöðum
rannsókna Sigrúnar og Gylfa voru þær
túlkaðar á þennan veg í fjölmiðlum: Meiri
vinna, betra kynlíf. Sigrún segir þessa al-
hæfingu ranga. Hún segir að svörunin við
spurningalistunum sé skekkt í þeim skiln-
ingi að þau 113 hjón sem svöruðu eigi lang-
flest að baki háskólanám eða starfsnám, en
það sama gildir ekki um þjóðina sem
heild. Eiginmaðurinn var yfirleitt ánægð-
ur í vinnunni og hjónin lögðu sig fram að
nýta vel þær fáu frístundir sem þau áttu
saman. Þegar karlmaðurinn vann mjög
mikið en frístundirnar voru ekki nýttar
með fjölskyldunni og til að hlúa að hjóna-
bandinu var þeim mun meira um gremju,
árekstra og togstreitu sem auðvitað hafði
áhrif í daglegum samskiptum, gagnvart
börnunum og í hjónalífinu almennt.
Sigrún veit það af reynslu sinni sem
félagsráðgjafi að ekki tekst öllum hjónum
að greiða úr þeim vanda sem mikil vinna
skapar heimilislífinu. „Enn sorglegra er til
þess að vita að stundum dugar ekki þetta
dýrkeypta streð til að endar nái saman,
eins og húsnæðis- og barnagæslumálum er
háttað.“
Fyrir flest hjón er um tvær leiðir að velja
til að draga úr mikilli vinnu eiginmanns-
ins. Önnur er að sætta sig við minni tekj-
ur. Fæst hjón vilja minnka tekjurnar til
heimilisins, sérstaklega ef það þýðir að
þau verða að búa í leiguhúsnæði en það er
ótraust og erfitt að fá húsnæði á sann-
gjörnu verði. Hin leiðin er að eiginkonan
vinni meira úti. Fyrir barnafólk á höfuð-
borgarsvæðinu er þessi kostur oft ekki
raunhæfur vegna þess að börnin fá ekki
dagvist.
— Hjón, sem ekki eru í forgangshópi,
koma ekki börnunum í dagvist, nema þá í
leikskóla sem er þrjár klukkustundir á
dag. Og hver vinnur í þrjár klukkustundir
á dag? spyr Sigrún og segir íslendinga
eftirbáta nágrannaþjóða í dagvistunarmál-
um og reyndar í mörgum öðrum velferðar-
málum barna og foreldra, „sem eru for-
senda fyrir auknu jafnræði kynjanna og
bættum uppeldisskilyrðum barna og
unglinga.“
Ástæðuna telur hún vera að félagsleg
þjónusta hefur ekki fylgt í kjölfar annarra
breytinga í samfélaginu, til dæmis flókn-
ari atvinnuháttum og aukinni menntun
kvenna, sem þær vilja nýta. Það gengur
ekki að láta börnin vera sjálfala undir þess-
um kringumstæðum. „Þorpsgatan er ekki
lengur barnapía eins og hún var fyrir
nokkrum áratugum,“ segir Sigrún og
bendir á að hvergi á Norðurlöndum eru
tíðari slys á börnum í umferðinni en ein-
mitt hér á landi.
Eftir að Sigrún hafði gengið frá þeim
hluta rannsóknarinnar sem hún vann með
Gylfa Ásmundssyni hófst hún handa við
framhaldsrannsókn. Sigrún notar efnivið-
inn úr spurningalistunum og hefur bætt
við hann djúpviðtölum við hjón. Rann-
sóknin tekur einnig til samskipta í hjóna-
böndum fyrr og nú og tekur Sigrún mið af
sögulegri þróun hjónabands- og fjöl-
skyldustofnunar. „Heimildir eru fátæk-
legar en til þess fallnar að draga megi af
þeim ályktanir.“
Hjónabandið hefur breyst frá því að
vera efnahagsleg stofnun, þar sem hjón
voru hvort öðru háð í efnahagslegu tilliti,
yfir í það að vera tilfinningastofnun sem
lýtur öðrum lögmálum. „Það gerir hjón-
um oft erfitt fyrir vegna þeirra væntinga
sem þau hafa hvort til annars. Það verður
mikið álag á þessa litlu einingu, innan frá
sem utan“, segir Sigrún.
Mörg íslensk hjón leysa þetta vandamál
með því að karlinn vinnur svo langan
vinnudag að ekki gefst tími til að bera
saman væntingar við veruleikann. Afleið-
ingarnar eru hinsvegar ófyrirséðar. Hjón-
in í könnun Gylfa og Sigrúnar eru enn
ekki komin á miðjan aldur og enginn veit
hvernig þeim mun farnast þegar þau eld-
ast.
20 ÞJÓÐLÍF
0