Þjóðlíf - 01.07.1990, Blaðsíða 65
KVIKMYNDIR |
Skafid of
bolninum
MARTEINN ST. ÞÓRSSON
Bruce Willis og Emily Lloyd íhlutverkum sínum í Uppgjörinu, sem nú
er sýnd í Bíóborginni.
Nokkur lognmolla ríkir nú á
miðum íslensku kvikmynda-
húsanna og eru flest að undir-
búa sig undir aflavertíð stór-
myndanna frá Bandaríkjum
Norður-Ameríku. Þar fyrir
vestan er einmitt slagurinn um
dollarana byrjaður og þegar er
búið að frumsýna myndir eins
og „Back to the Future III“,
„Another 48 HRS“, „Greml-
ins 2“, og „Total Recall“ (en
það er nýja Schwarzenegger
myndin). Eins og sjá má af
þessari upptalningu eru þetta
allt saman hasar- og/eða löggu-
myndir, sem ganga vel í af-
þreyingarsjúkan almúgann
vestan hafs, sem austan. Fáar
stórmyndanna í sumar eru
ekki framhaldsmyndir, ein-
ungis er vert að nefna „Dick
Tracy“ og „Total Recall“.
Margar minni myndanna eru
sjálfstæðar og einar sér, og
virðist þar vera frekar feitan
gölt að flá. Annars fjalla ég
meira um þær síðar.
Það sem Reykvíkingar berja
augum á tjöldum kvikmynda-
húsanna í dag, er að mestu ein-
hver undirmálsfiskur sem
koma þarf frá sér.
Uppgjörið (In Country) -
Bíóborgin **
eHér er kominn hasarhlunk-
urinn Bruce Willis (Die Hard)
í sinni fyrstu atrennu til
óskarsverðlaunatilnefningar.
Tilraun sem mistókst. Mynd-
in fjallar (og getiði nú), um eft-
irmála Víetnam stríðsins, og er
einkar hugljúft en bragðdauft
drama frá hinum annars
hnyttna Norman Jewison
(Moonstruck, The Fiddler on
the Roof). Litla enska hnátan
Emily Lloyd leikur ameríska
stúlkukind sem hafði ekki
hugmynd um stríðið en kemst
síðan að því að frændi hennar
(Brúsi) hafði verið þátttakandi
í því. Hann vill hins vegar ekk-
ert um málið tala.
Stórkostleg stúlka (Pretty
Woman) - Bíóborgin **
Öskubuska í Hollywood. Hér
er saman komið mjög fallegt
fólk, undir handleiðslu mjög
fagmannlegra kvikmynda-
gerðarmanna, og útkoman
verður mjög bleik og sykurrík.
Eða kannski frekar eins og
„Diet-Coke“ auglýsing.
Ágætis afþreying, en hrikalega
villandi lýsing á lífi vændis-
kvenna í Hollywood.
Kynlíf, lygar og
myndbönd (Sex, lies and
videotape)
Bíóborgin *** 1/2
Besta myndin í bíó þegar þetta
er skrifað. Eitthvað fyrir unn-
endur ljúfra og erótískra
mynda.
Síðasta ferðin (Joe vs. the
Volcano) - Bíóhöllin **
1/2
Ævintýramynd frá Spielberg
og Amblin fyrirtæki hans.
Inniheldur öll vörumerki
Spielbergs. Nett og skemmti-
leg afþreying. Ekkert meira.
Meg Ryan („When Harry
Met Sally“), er mjög sjarmer-
andi í sínum þremur kvenhlut-
verkum, og hefur greinilega
gaman af að því að bregða sér í
hin ýmsu gerfi. Velji nú hver
sína tegund af Meg.
Leikstjórinn og handrits-
höfundurinn (hann samdi ósk-
arsverðlaunahandritið að
Moonstruck) John Patrick
Shanley stendur sig ágætlega,
og skemmtir sér manna best.
Alltaf (Always) -
Laugarásbíó **
Og enn um Spielberg. Hér
leikstýrir hann sjálfur og er
viðfangsefnið flugvélar, skóg-
areldar og mennirnir sem að
berjast við skógareldana.
Myndin er endurgerð á gam-
alli Spencer Tracy mynd, sem
nefndist „A Guy Named Joe“,
og hefur Spielberg lengi verið
með þessa mynd í burðarliðn-
um.
Maður hefði nú haldið að
Spielberg hefði fullorðnast og
gæti tekist á við „fullorðins-
mynd“, svona fordómalaust.
En eitthvað hefur komið fyrir
manninn. Hann notar silki-
hanska á bæði efni og leikara,
smyr myndina í ljósrauðum
filterum og makar væmni á allt
það sem inn í rammann kem-
ur. Eftir stendur góður leikur
Richard Dreyfuss, ofleikur
Holly Hunter og gamanleikur
John Goodman. Ég verð nú
að viðurkenna að myndin er
fantavel tekin. En má ég þá
heldur biðja um Indiana Jon-
es.
Homeboy - Regnboginn
**l/2
Mickey Rourke er athyglis-
verður leikari sem gefur skít í
Hollywood og peningamenn-
ina þar. Hann vill helst vinna
með smáfyrirtækjum, þar sem
hann getur einhverju ráðið.
Ferill hans hefur verið nokkuð
misjafn, og sérstaklega hafa
nýjustu myndir hans valdið
vonbrigðum, og það má jafn-
vel segja um þessa.
í myndinni leikur Rourke
hnefaleikamann sem er svo að
segja kominn að því að hætta
íþróttinni, svo slæman heila-
skaða hefur hann hlotið, en...
Auðvitað er það síðasti slag-
urinn, slagur sem hann vill
berjast fyrir ástina (dretigur-
inn verður nefnilega ástfan-
ginn af lítilli hnátu sem leikin
er af fyrrverandi eiginkonu
Rourke, Debru Feuer). Sá
sem púrrar Rourke mikið upp,
er skuggalegur karakter leik-
inn af hinum stórsnjalla
Christopher Walken (The
Deer Hunter).
Leikarar standa sig allir með
miklum sóma og er mjög gam-
an að sjá saman þá Rourke og
Walken. Rourke er að venju
búinn að undirbúa sig mjög vel
fyrir hlutverkið, og býst mað-
ur við þegar hann sést á skerm-
inum í fyrsta skipti, að hann
muni gefa upp öndina á næstu
sekúndum.
Myndin fer ágætlega af stað,
en eitthvað handritsbrengl
verður á miðri leið, og endir-
inn er uppáhaldsendir fram-
leiðendanna (enda fór Rourke
í mál við framleiðendur mynd-
arinnar).
Nýliði á leikstjórnarsviðinu en
gamalreyndur kappi á kvik-
myndatökusviðinu, Michael
Seresin, stýrir og er allt mjög
stílhreint og fágað hann hefur
einnig ágætis stjórn á leikur-
um. Seresin var um árabil
tökumaður Alan Parker
breska.
ÞJÓÐLÍF 65