Þjóðlíf - 01.07.1990, Page 21

Þjóðlíf - 01.07.1990, Page 21
INNLENT | Sjávarútvegur mun ekki þurfa að lenda í eða valda stórsveiflum í íslenska efnahagslífinu í framtíðinni. HVERNIG Á AÐ TRYGGJA VARANLEGAN ÁRANGUR? Árangur í efnahagsmálum betri en menn áttu von á. Stjórnvöld íhuga lítils háttar gengishœkkun. Ögmundur Jónasson formaður BSRB: Meginmálið að tryggja launafólki ávinninginn. Margir sérfræðingar efins um gengishœkkunarleiðina. Vaxandi þungi á veiðileyfagjald í framtíðinni. Mun virðisaukaskatturinn lækka á næsta ári? ÓSKAR GUÐMUNDSSON OG SNJÓLFUR ÓLAFSSON — Svona stöðugleikatímabil hefur ekki þekkst á Islandi í nærfellt tvo áratugi, segir Már Guðmundsson efnahagsráð- gjafi fjármálaráðherra. Og margir taka í sama streng. En er hægt að reikna með því að stöðugleikatímabilið ríki áfram og ef svo er hvað er hægt að gera til að tryggja það? — Margar vísbendingar eru um það að sveiflur í sjávarútvegi verði ekki jafn mikl- ar í framtíðinni og þær hafa verið, a.m.k. sé möguleiki á að koma í veg fyrir stór- sveiflur í atvinnugreininni, segir Ágúst Einarsson prófessor. Þá eru menn að vísa til nýrrar löggjafar um verðjöfnunarsjóð sjávarútvegsins sem sníði af áhrif af verð- sveiflum á erlendum mörkuðum, að alltof stór floti fari minnkandi og þar með aukist hagkvæmni sjávarútvegsins af sjálfu sér, og að með kvótafyrirkomulaginu séu líkur á að sveiflur í aflamagni verði minni en áður var. Þá telja sumir að fyrirtækin muni ekki nota tækifærið til launaskriðs heldur til að bæta eiginfjárstöðuna sem er víða í rústum eftir langvarandi fjármagns- kostnaðartímabil. Batnandi afkoma sjávarútvegs í heild- ina hefur valdið mörgum áhyggjum af að þensla sigli í kjölfarið og gera þurfi víð- tækar efnahagsráðstafanir til að stemma stigu við henni. „Við íslendingar höfum gott af því að lifa tímabil án sérstakra efna- hagsráðstafana“, segir Már Guðmundsson. Margir eru þeirrar skoðunar að hægt sé að stemma stigu við verðbólgu og þenslu- áhrifum með hækkun gengisins. Þeirri leið er fundið til foráttu að með gengis- hækkun myndi afkoma versna í þeim út- flutningsgreinum sem ekki hafa notið bata að undanförnu, þ.e. annarra greina en sjávarútvegs. Og þar með fjölgaði gjald- þrotum. Enn fremur að þó erlendar vörur yrðu ódýrari og kaupmáttur heimilanna þar með aukinn, myndi eigi að síður vera um skammtímabót að ræða fyrir heimilin í landinu. Þessu eru ekki allir sammála fremur en svo oft áður í mannanna heimi. Efnahags- ráðgjafi fjármálaráðherra telur að lítils- háttar gengishækkun sé ein af þeim leið- um sem komi til greina til að vinna á móti þenslu og verðhækkunum. Hann telur að forsendur slíkrar gengishækkunar liggi í almennum viðskiptakjarabata og í meira innstreymi gjaldeyris en útstreymis að undanförnu. Að svo miklu leyti sem þess- ar breytingar eru varanlegar, þá er gengis- hækkun varanleg kjarabót fyrir heimilin, segir Már. — Gengishækkun nú fylgja auðvitað ýmis vandamál, sérstaklega fyrir iðnaðinn. Hins vegar er hún betri leið en ef almenn launahækkun ætti sér stað vegna þess að verðbólga yrði meiri en gert var ráð fyrir, því þá er hætt við að allt fari úr böndunum. Það er hins vegar ljóst að gengishækkun verður að fylgja eftir með ÞJÓÐLÍF 21
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.