Þjóðlíf - 01.07.1990, Page 32

Þjóðlíf - 01.07.1990, Page 32
að tekið yrði á spillingu og klíkuskap. Ennfremur, voru mótmælendur ekki að missa móðinn? Þeir töldu yfir 200.000 á torginu er hæst stóð. Einungis 10.000 voru eftir þann fjórða júní. Því er haldið fram að átök innan flokksins hafi ráðið mestu um að svo fór sem fór, harðlínumenn hafi að minnsta kosti sýnt að þeirra var ríkið og mátturinn. Harðlínumenn höfðu betur, en hinir hófsömu hafa að líkindum ekki sagt sitt síðasta orð. Hreinsanir í flokknum urðu mun minni í vöfum en margir ætluðu, sem þykir benda til að þeir séu fjölmennir. Menn leiða jafnvel að því getum að Lí Peng forsætisráðherra verði „fórnað“ til að bæta ímynd yfirvalda. Öllum er nefni- lega ljóst að valið stendur á milli umbóta og hnignunar. Talsvert bakslag kom að vísu í efnahagsumbætur eftir at- burðina í fyrra, en eins og Deng Sjáping sagði, er áríðandi að halda þeim áfram. Á sama tíma leggja ráðamenn áherslu á stöðugleika. „Það er það sem Kínverjar vilja, það sem við þurfum til að bæta hag okkar,“ útskýrði Lí Peng síðastliðinn apríl. Rétt er að lands- lýð flestum, sem enn hefur vart til hnífs og skeiðar, er ekki svo umhugað um pólitískar breytingar. „Heldurðu að kot- bóndinn í Kína, sem skreiðist inn í kofann sinn að loknum löngum degi, fari þá að hugsa um Guð, frelsi og lýðræði?“ er spurt í skáldsögu eftir Graham Greene. „Hann vill bara sín hrísgrjón." Það má vera. Hins vegar er augljóst að nauðsynlegar breyt- ingar til batnaðar á efnahagnum heppnast ekki nema alræði kommúnistaflokksins verði afnumið. Og hvað með mennta- mennina? Þeir verða að vera í fremstu víglínu í uppbyggingu landsins, þeir lifa ekki á hrísgrjónum einum saman, þeir vita hvað er á seyði í heiminum. „Valdhafar geta komið náms- mönnum af torginu“, sagði einn sagnfræðingur í fyrrasumar, „en þeir geta ekki komið þessum hugsunum úr hausnum á þeim.“ Deng Sjáping tók þess vegna kolrangan pól í hæðina þegar hann mat hvaða sann má heimfæra af atburðunum í Peking fyrir ári. Lærdómurinn er frekar þessi: ef bæta á efnahaginn, verður að breyta pólitíska kerfinu. Umbæturnar fjórar munu ekki ná fram að ganga ef haldið er í Meginreglurnar fjórar. Það stendur enn. Lítið mun breytast á meðan Deng er við lýði. Nú er hann orðinn 86 ára og gæti snúið upp tánum á hverri stundu, sömuleiðis Jang Sjangkún sem er þremur árum yngri. Vita- skuld er vandi að spá hvað þá tekur við. Þó þykir sýnt að einhver átök fari í hönd, milli hersins og flokksins, og einnig í millum harðlínumanna og hófsamra á báðum vígstöðvum. Eitt er víst; allir munu þvo hendur sínar af glæpnum í fyrra- sumar. Við hlýddum bara skipunum, mun herinn segja. Við vorum á móti öllu ofbeldi, kveða hinir hófsömu þá við, og harðlínumennirnir geta sagt sér til varnar að þeir hafi gert það sem gera þurfti til bjargar sósíalisma í Kína, sem eflaust er rétt, þegar haft er í huga hvað þeir eiga við með „sósíalisma“. Fjórði júní 1989 er einnig merkur fyrir þá sök að þann dag voru kosningar í Póllandi, þær fyrstu í Austur-Evrópu í yfir fjörutíu ár þar sem fleiri en einn flokkur var í raun í framboði. Nú sjá menn að hvarvetna standa alráðum kommúnistaflokk- um þessir valkostir til boða; „pólska leiðin“ og „kínverska leiðin“. í fyrra fannst valdhöfum í Kína þeir eiga engra kosta völ. Vonandi ná þeir yfirhöndinni sem eru á öndverðum meiði að öllu leyti, fyrir utan það að einnig þeim sýnist aðeins ein leið fær. 0 Tvöfaldur raki ACO FUKTLOTION gefur húð þinni tvö náttúruleg rakabindiefni. Finndu sjálf hve ACO Fukt- lotion smýgur hratt inn í húð- ina án þess að klægi eða svíði undan og hve húðin verður mjúk. ACO FUKTLOTION ilmar einnig þægilega. Heldurðu að þú finnir betri húðmjólk? Hún er notaleg fyrir allan líkamann. ACO Fuktlotion! Með og án ilmefna. Fæst aðeins í apótekinu 32 ÞJÓÐLÍF ’RIRTAK hf.sími 91-3 20 70
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.